Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ekrusmári 6. Fanney Gunnarsdóttir. Umsókn um rekstrarleyfi vegna heimagistingar. Beiðni um umsögn.

Málsnúmer: 1505550

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2776. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 26. maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21. maí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fanneyju Gunnarsdóttur, kt. 300760-4739, um nýtt rekstrarleyfi fyrir heimagistingu í flokki I að Ekrusmára 6, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Hvað staðsetningu varðar er ekki gert ráð fyrir atvinnustarfsemi samkvæmt gildandi skiulagi, en bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.