Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Viðaukar 2015. Fjárhagsáætlun. Liðveisla og frekari liðveisla.

Málsnúmer: 1505698

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1118. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 27. maí, lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna liðveislu og frekari liðveislu, ásamt umsögn sviðsstjóra velferðarsviðs. Bæjarráð vísaði afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum viðauka I við fjárhagsáætlun 2015.

02

Bæjarstjórn - 1118. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 9. júní, lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna styrks til Sunnuhlíðar til greiðslu fasteignagjalda með skilyrðum.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að veita Sunnuhlíð Hjúkrunarheimili styrk að fjárhæð kr. 59.301.895,- til að standa straum af gjaldföllnum fasteignagjöldum hjúkrunarheimilisins í samræmi við tillögu bæjarstjóra, dags. 9. júní 2015, og að uppfylltum skilyrðum sem þar koma fram. $line$$line$Jafnframt samþykkir bæjarstjórn með 11 atkvæðum framlagðan viðauka 2, dags. 9. júní 2015, við fjárhagsáæltun ársins 2015 vegna framangreindrar styrkveitingar til Sunnuhlíðar. Inntak viðaukans er að dregið verði úr stofnfjárfestingum stofnana og framlög aðalsjóðs vegna þeirra því lækkuð sem nemur umræddri fjárhæð. Mun samþykkt styrksins því ekki hafa áhrif rekstrarafkomu Kópavogsbæjar.

03

Bæjarráð - 2776. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 27. maí, lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna liðveiðslu og frekari liðveislu, ásamt umsögn sviðsstjóra velferðarsviðs.

Bæjarráð vísar afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar.