Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Digranesvegur 32. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1505721

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1123. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sudio F arkitekta f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að íbúð í kjallara verði skráð sem séreign. Á fundi skipulagsnefndar 1.6.2015 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1265. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Sudio F arkitekta, f.h. lóðarhafa. dags. 13.5.2015 þar sem óskað er eftir að íbúð í kjallara verði skráð sem séreign sbr. uppdráttum dags. 10.4.2015. Á fundi skipulagsnefndar 1.6.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 30 og 34. Kynningu lauk 31.8.2015. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1260. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Sudio F arkitekta, f.h. lóðarhafa. dags. 13.5.2015 þar sem óskað er eftir að íbúð í kjallara verði skráð sem séreign sbr. uppdráttum dags. 10.4.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 30 og 34.