Lækjarbotnaland (24). Ósk um afmörkun lóðar.
Málsnúmer: 1505734
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1122. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 18. ágúst, lagt fram að nýju erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir afmörkun nýrrar lóðar í Lækjarbotnalandi fyrir smádreifistöð. Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri staðsetningu fyrirhugaðrar smádreifistöðvar. Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2785. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 18. ágúst, lagt fram að nýju erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir afmörkun nýrrar lóðar í Lækjarbotnalandi fyrir smádreifistöð. Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttri staðsetningu fyrirhugaðrar smádreifistöðvar. Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Lagt fram að nýju erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur dags. 13.5.2015 þar sem óskað er eftir afmörkun nýrrar lóðar í Lækjarbotnalandi fyrir smádreifistöð. Lóð verður 4x4m að stærð sbr. uppdráttum.$line$Lögð fram tillaga Umhverfissviðs að breyttri staðsetningu fyrirhugaðrar smádreifistöðvar dags. 15. júní 2015.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1260. fundur
Lagt fram erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur dags. 13.5.2015 þar sem óskað er eftir afmörkun nýrrar lóðar í Lækjarbotnalandi fyrir smádreifistöð. Lóð verður 4x4m að stærð sbr. uppdráttum.
Frestað. Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.