Nýbýlavegur 20. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 15061205
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1122. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 25. ágúst, lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagaða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2785. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 25. ágúst, lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagaða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 10.2.2015. Á fundi skipulagsnefndar var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 16, 18, 20 og 22. Kynningu lauk 14.8.2015. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1261. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 10.2.2015. Í erindi er óskað eftir að hækka þak á rými 0201 um 1,2m. Einnig er bætt við nýjum flóttastiga á bakhlið sbr. uppdráttum dags. 10.2.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 16, 18, 20 og 22.