Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Líkamsræktarstöðvar 2015, útboð á húsnæði í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni í Versölum.

Málsnúmer: 15061886

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1129. fundur

Frá bæjarlögmanni og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 18. nóvember, lagt fram erindi vegna útleigu húsnæðis undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs. Í kjölfar útboðs samþykkti bæjarráð að gengið yrði til samninga við Gym heilsu ehf. um leigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu, en við undirbúning samningagerðar hafa komið fram annmarkar á tilboði Gym heilsu ehf. Eru annmarkarnir slíkir að ekki er unnt að meta tilboð Gym heilsu ehf. gilt líkt og áður hafði verið talið. Óhjákvæmilegt sé því að bjóða leigu húsnæðisins út að nýju. Bæjarráð samþykkti með 3 atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Hjördísar Ýrar Johnson, gegn 2 atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar og Birkis Jóns Jónssonar að bjóða leigu húsnæðis undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs út að nýju þar sem nú liggur fyrir að ekkert gilt tilboð barst í síðasta útboði.

Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum gegn fjórum að bjóða til leigu húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum bæjarins. Atkvæði með greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Jón Finnbogason, Theódóra Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson, en atkvæði á móti greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson.

02

Bæjarráð - 2802. fundur

Frá bæjarlögmanni og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 18. nóvember, lagt fram erindi vegna útleigu húsnæðis undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs. Í kjölfar útboðs samþykkti bæjarráð að gengið yrði til samninga við Gym heilsu ehf. um leigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu, en við undirbúning samningagerðar hafa komið fram annmarkar á tilboði Gym heilsu ehf. Eru annmarkarnir slíkir að ekki er unnt að meta tilboð Gym heilsu ehf. gilt líkt og áður hafði verið talið. Óhjákvæmilegt sé því að bjóða leigu húsnæðisins út að nýju.

Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Hjördísar Ýrar Johnson, gegn 2 atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar og Birkis Jóns Jónssonar að bjóða leigu húsnæðis undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs út að nýju þar sem nú liggur fyrir að ekkert gilt tilboð barst í síðasta útboði.$line$$line$Bókun:$line$"Undirritaðir telja fullreynt að bjóða út rekstur íþróttaaðstöðu í sundlaugum Kópavogs. Alls hafa farið fram þrjú útboð án árangurs. Við teljum að Kópavogsbær eigi að hefja viðræður við Samkeppniseftirlitið um endurskoðun á samningi Kópavogs við eftirlitið varðandi útboð. $line$Það eru hagsmunir Kópavogsbúa að boðið sé upp á góða og ódýra líkamsræktarþjónustu í sundlaugum Kópavogs. Engin lagaskylda hvílir á Kópavogsbæ að bjóða út leigu á húsnæði í eigu bæjarins.$line$Birkir Jón Jónsson$line$Pétur Hrafn Sigurðsson $line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Bókun:$line$Kópavogsbær gerði sátt, dags. 5. desember 2011, við Samkeppniseftirlitið í málinu nr. 3/2012 þar sem Kópavogsbær skuldbatt sig til þess að hlíta skilyrðum sáttarinnar í þeim tilgangi að eyða samkeppnishindrunum. Með sáttinni er Kópavogsbæ m.a. gert skylt að bjóða út þá húsnæðisaðstöðu þá sem bærinn hefur leigt undir líkamsræktaraðstöðu í tengslum við rekstur sundlauga bæjarins. $line$Eins og fram hefur komið hafa annmarkar í tilboði Gym heilsu ehf. orðið til þess að tilboðið er ekki gilt. Ákvæði um ný tæki í líkamsræktarstöðvunum var ekki uppfyllt í tilboðinu. $line$Kópavogsbær hefur nýverið átt samskipti við Samkeppniseftirlitið um framvindu sáttarinnar. Undirrituð telja að það þjóni hagsmunum Kópavogsbæjar að virða sátt og samkomulag við Samkeppniseftirlitið."$line$Theódóra S. Þorsteinsdóttir$line$Karen E. Halldórsdóttir$line$Hjördís Ýr Johnson"

03

Bæjarráð - 2797. fundur

Bæjarlögmaður gerði grein fyrir framvindu og stöðu útboðs á verkefninu "Útleiga á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi".

04

Bæjarráð - 2783. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 22. júlí, lagðar fram niðurstöður útboðs á verkefninu "Útleiga á líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi" og lagt til við bæjarráð að leitað verði samninga við Gym heilsa ehf.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Gym heilsa ehf. um rekstur líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi.

05

Bæjarstjórn - 1119. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. júní, lögð fram beiðni um heimild til að bjóða út í opnu útboði það húsnæði sem notað er undir rekstur á líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum. Bæjarráð samþykkti með fjórum atkvæðum gegn einu að heimilað verði að fara í opið útboð á húsnæði sem notað er undir rekstur á líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum með framlögðum breytingum Ólafs Þórs Gunnarssonar.

Bæjarstjórn samþykkir að veita heimild til útboðs með níu atkvæðum gegn tveimur. Tillöguna samþykktu Margrét Friðriksdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Ólafur Þór Gunnarsson og Kristín Sævarsdóttir en Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson greiddu atkvæði gegn tillögunni.

06

Bæjarráð - 2779. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. júní, lögð fram beiðni um heimild til að bjóða út í opnu útboði það húsnæði sem notað er undir rekstur á líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins þann 11. júní sl.

Kópavogsbær gerði sátt, dags. 5. desember 2011, við Samkeppniseftirlitið í málinu nr. 3/2012 þar sem Kópavogsbær skuldbatt sig til þess að hlíta skilyrðum sáttarinnar í þeim tilgangi að eyða samkeppnishindrunum. Með sáttinni er Kópavogsbæ m.a. gert skylt að bjóða út þá húsnæðisaðstöðu þá sem bærinn hefur leigt undir líkamsræktaraðstöðu í tengslum við rekstur sundlauga bæjarins. Kópavogsbær hefur í tvígang áður boðið út nefnt húsnæði í þeim tilgangi að efna ákvæði sáttarinnar en án árangurs. Er nú í þriðja sinni lagt til að aðstaðan verði boðin út og nú að teknu tilliti til sjónarmiða sem fram hafa komið í vinnu við lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar.$line$$line$Fundarhlé hófst kl. 9:16. Fundur hófst aftur kl. 9:20$line$$line$Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu að heimilað verði að fara í opið útboð á húsnæði sem notað er undir rekstur á líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum með framlögðum breytingum Ólafs Þórs Gunnarssonar. Pétur Hrafn Sigurðsson kaus gegn tillögunni.$line$$line$Bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar$line$"Undirritaður telur það ekki þjóna hagsmunum Kópavgosbúa að bjóða út rekstur líkamsræktarstöðva í sundlaugum Kópavogsbæjar. Engin lagaskylda hvílir á Kópavogsbæ að bjóða út leigu á húsnæði bæjarins. Kópavogur hefur undanfarin 18 ár átt gott samstarf við núverandi rekstraraðila sem hefur boðið Kópavogsbúum upp á aðstöðu til líkamsræktar á viðráðanlegu verði og eðlilegt að gengið verði til áframhaldandi samninga við þann aðila."$line$$line$Sigurjón Jónsson varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins tekur undir bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar. $line$$line$Karen Halldórsdóttir tekur undir að núverandi rekstraraðilar hafi staðið sig vel, hins vegar sé Kópavogsbær skuldbundinn að sátt við Samkeppniseftirlitið frá nóvember 2012 um að bjóða húsnæðisaðstöðuna út.

07

Bæjarráð - 2778. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. júní, lögð fram beiðni um heimild til að bjóða út í opnu útboði það húsnæði sem notað er undir rekstur á líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum.

Hlé var gert á fundi kl. 9.15. Fundi var framhaldið kl. 9.22.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu.