Langabrekka 5. Grenndarkynning
Málsnúmer: 15062060
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1269. fundur
Lagt fram bréf frá Kristjáni Kristjánssyni lóðarhafa Löngubrekku 5, dags. 18.11.2015, þar sem óskað er eftir rökstuðningi vegna höfnunar um stækkun bílskúrs.
Lagt fram. Vísað til úrvinnslu bæjarlögmanns.
02
Bæjarstjórn - 1126. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 27. október, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa Löngubrekku 5 dags. 22.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 14.9.2015 var erindinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 26.10.2015. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
03
Bæjarráð - 2794. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 27. október, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa Löngubrekku 5 dags. 22.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 14.9.2015 var erindinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 26.10.2015. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
04
Skipulagsnefnd - 1267. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram að nýju erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa Löngubrekku 5 dags. 22.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 14.9.2015 var erindinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 26.10.2015.
Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
05
Skipulagsnefnd - 1265. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa dags. 22.6.2015. Óskað er eftir að byggja við bílskúr til suðurs á lóðinni Löngubrekku 5. Viðbygging er 2,5 x 7,5 metrar að stærð eða um 19 m2 að grunnfleti. Hæð viðbyggingar verður 3,3 m og er 0,5 m frá lóðarmörkum við Álfhólsveg 61. Gólfkóti viðbyggingar verður 1,3m lægri en lóðin við Álfhólsveg 61 sbr. meðfylgjandi uppdrætti dags. 22.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 22.6.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Löngubrekku 3 og 7; Álfhólsvegar 59, 61 og 63. Kynningu lauk 28.8.8.2015. Athugasemd barst frá Jóni Guðmundssyni og Ernu Jónsdóttur, Álfhólsvegi 61, dags. 18.8.2015. Þá lögð fram greinargerð lóðarhafa Löngubrekku 5 ásamt fylgiskjölum dags. 13.8.2015.
Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
06
Skipulagsnefnd - 1262. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa dags. 22.6.2015. Óskað er eftir að byggja við bílskúr til suðurs á lóðinni Löngubrekku 5. Viðbygging er 2,5 x 7,5 metrar að stærð eða um 19m2 að grunnfleti. Hæð viðbyggingar verður 3,3m og er 0,5m frá lóðarmörkum við Álfhólsveg 61. Gólfkóti viðbyggingar verður 1,3m lægri en lóðin við Álfhólsveg 61 sbr. meðfylgjandi uppdrætti dags. 22.6.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Löngubrekku 3 og 7; Álfhólsvegar 59, 61 og 63.
07
Skipulagsnefnd - 1261. fundur
Lagt fram erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa dags. í mars 2012. Óskað er eftir að byggja við bílskúr til suðurs á lóðinni Löngubrekku 5. Viðbygging er 2,5 x 7,5 metrar að stærð eða um 19m2 að grunnfleti. Hæð viðbyggingar verður 3,3m að hæð og stendur 0,5m frá lóðarmörkum við Álfhólsveg 61. Gólfkóti viðbyggingar verður 1,3m lægri en lóðin við Álfhólsveg 61 sbr. meðfylgjandi uppdrætti dags. í mars 2012.
Frestað. Óskað eftir uppfærðum gögnum.