Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Víðihvammur 30. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 15062065

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1263. fundur

Lagt fram að nýju erindi Arkís f.h. lóðarhafa dags. 29.5.2015. þar sem óskað er eftir breytingum á einbýlishúsi við Víðihvamm 30. Í breytingunni felst að breyta húsinu í tvíbýli og byggja við húsið á tveimur stöðum:$line$1. Nýtt 5m2 anddyri við núverandi inngang á norðurhlið efri hæðar hússins.$line$2. Byggja 14 m2 viðbyggingu á suðurhlið neðri hæðar hússins, á þaki viðbyggingar verða svalir fyrir efri hæðina.$line$Gert er ráð fyrir nýju bílastæði á vesturhluta lóðarinnar. Heildarbyggingarmagn hækkar úr 178,5m2 í 197,3m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,25 í 0,28 eftir breytingu sbr. uppdráttum dags. 10.8.2015.$line$

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð breyting á Víðihvammi 30 verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 23, 25, 26, 27, 28, 29, 32, 34, 36 og 38; Fífuhvamms 37 og 39.

02

Skipulagsnefnd - 1261. fundur

Lagt fram erindi Arkís f.h. lóðarhafa dags. 29.5.2015. þar sem óskað er eftir breytingum á einbýlishúsi við Víðihvamm 30. Í breytingunni felst að breyta húsinu í tvíbýli og byggja við húsið á tveimur stöðum:$line$1. Nýtt 5m2 anddyri við núverandi inngang á norðurhlið efri hæðar hússins.$line$2. Byggja 14m2 viðbyggingu á suðurhlið neðri hæðar hússins, á þaki viðbyggingar verða svalir fyrir efri hæðina.$line$Heildarbyggingarmagn hækkar úr 178,5m2 í 197,3m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,25 í 0,28 eftir breytingu sbr. uppdráttum dags. 29.5.2015.

Frestað.