Skólagerði 40. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 15062169
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1123. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breytingum á Skólagerði 40. Í breytingunni felst að reisa 60 m2 tvöfaldan bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar. Að auki verða byggðar 6,6 m2 svalir á vesturhlið hússins á 2. hæð. Á fundi skipulagnefndar 22.6.2015 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Skipulagsnefnd - 1265. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf, f.h. lóðarhafa dags 28.5.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Skólagerði 40. Í breytingunni felst að reisa 60m2 tvöfaldan bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar. Hæð bílskúrs verður 2,7m og grunnflötur 7,6 x 7,9m að stærð. Að auki verða byggðar 6,6m2 svalir á vesturhlið hússins á 2. hæð sbr. uppdráttum dags. 15.4.2015. Á fundi skipulagnefndar 22.6.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Skólagerðis 38, 42, 47 og 49; Holtagerðis 51, 55 og 53. Kynningu lauk 1.9.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1262. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunnar ehf, f.h. lóðarhafa dags 28.5.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Skólagerði 40. Í breytingunni felst að reisa 60m2 tvöfaldan bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar. Hæð bílskúrs verður 2,7m og grunnflötur 7,6 x 7,9m að stærð. Að auki verða byggðar 6,6m2 svalir á vesturhlið hússins á 2. hæð sbr. uppdráttum dags. 15.4.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Skólagerðis 38, 42, 47 og 49; Holtagerðis 51, 55 og 53.