Beiðni um flutning á skipulagsdegi leikskólans Marbakka
Málsnúmer: 15062317
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 99. fundur
Beiðni leikskólans Marbakka um tilfærslu á skipulagsdegi vegna námsferðar fyrir skólaárið 2018-2019 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi.
02
Leikskólanefnd - 97. fundur
Beiðni leikskólans Marbakka um tilfærslu á skipulagsdegi vegna námsferðar fyrir skólaáarið 2018-2019 lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd tekur jákvætt í umsóknina, en frestar afgreiðslu til næsta fundar. Óskað er frekari gagna um tilgang og markmið ferðar samkvæmt reglum Kópavogsbæjar um tilfærslu á skipulagsdegi.
03
Leikskólanefnd - 61. fundur
Lagt fram erindi foreldraráðs leikskólans Marbakka varðandi breytingu á skipulagsdögum og fjárhagslegt svigrúm vegna stærðar síðasta árgang leikskólans.$line$$line$Leikskólanefnd þakkar fyrir erindið og felur leikskóladeild að svara bréfinu.
04
Leikskólanefnd - 60. fundur
Umsókn frá leikskólanum Kór um breytingar á skipulagsdögum. Einnig er lagt fram bréf fagstjóra heilsuleikskólanna sem er stuðningur við ósk um tilfærslu til 30. október. $line$Annars vegar er óskað eftir að færa 20. nóvember 2015 til 30. október vegna sameiginlegs starfsdags hjá Skólum ehf. Hins vegar er óskað eftir að færa 24 ágúst 2015 og 4. janúar 2016 til 20. og 22. apríl 2016 vegna námsferðar starfsmanna.$line$Leikskólanefnd samþykkir tilfærslu vegna námsferðar, en hafnar tilfærslu vegna sameiginlegs starfsdags.