Hrauntunga 62. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 15062339
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1123. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, lagt fram að nýju erindi Ragnheiðar Aradóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa vegna fyrirhugaðrar stækkunar við Hrauntungu 62. Í breytingunni felst að reist verði 25 m2 viðbygging við vesturhlið hússins. Á fundi skipulagsnefndar 17.8.2015 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Engar athugasemdir bárust og samþykktu nærliggjandi lóðarhafar fyrirhugaðar breytingar. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Skipulagsnefnd - 1265. fundur
Lagt fram að nýju erindi Ragnheiðar Aradóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 19.6.2015 vegna fyrirhugaðrar stækkunar við Hrauntungu 62. Í breytingunni felst að reist verði 25 m2 viðbygging við vesturhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 19.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 17.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð breyting á Hrauntungu 62 verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hrauntungu 60 og 64; Hlíðarvegi 41, 43 og 45. $line$$line$Þá lagður fram uppdráttur sem sýnir fyrirhugaðar breytingar með undirskrift fyrrnefndra lóðarhafa sem samþykkja fyrirhugaðar breytingar.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Lagt fram erindi Ragnheiðar Aradóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 19.6.2015 vegna fyrirhugaðrar stækkunar við Hrauntungu 62. Í breytingunni felst að reist verði 25 m2 viðbygging við vesturhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 19.6.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð breyting á Hrauntungu 62 verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hrauntungu 60 og 64; Hlíðarvegi 41, 43 og 45.