Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hestamannafélagið Sprettur. Beiðni um styrk vegna eftistöðva fasteignagjalda. Misritun í samningi.

Málsnúmer: 1507010

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1120. fundur

Frá hestamannafélaginu Spretti, dags. 26. júní, lagt fram erindi vegna niðurfellingar fasteignagjalda umfram fasteignaskatt af fasteign félagsins með vísan til misritunar í samkomulagi við Kópavogsbæ sem undirritað var þann 12. nóvember 2012, en þar er ritað fasteignaskattur í stað fasteignagjalda.$line$Bæjarráð staðfesti að um misritun hafi verið að ræða í samkomulagi aðila frá 12.11.2012 þannig að í 6. gr. þess eigi að standa "fasteignagjöld" í stað "fasteignaskatts" og vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2782. fundur

Frá hestamannafélaginu Spretti, dags. 26. júní, lagt fram erindi vegna niðurfellingar fasteignagjalda umfram fasteignaskatt af fasteign félagsins með vísan til misritunar í samkomulagi við Kópavogsbæ sem undirritað var þann 12. nóvember 2012, en þar er ritað fasteignaskattur í stað fasteignagjalda.

Bæjarráð staðfestir að um misritun hafi verið að ræða í samkomulagi aðila frá 12.11.2012 þannig að í 6. gr. þess eigi að standa "fasteignagjöld" í stað "fasteignaskatts" og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.