Reiðvegir á Vatnsendaheiði - tengingar í Heiðmörk
Málsnúmer: 1507317
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Lagt fram erindi frá Reiðveganefnd Spretts, dags. 12.6.2015 vegna reiðleiða á Vatnsendaheiði. Á meðfylgjandi uppdrætti og skýringarmyndum kemur fram hvernig reiðveganefnd Spretts telur æskilegt að reiðleiðir liggi um svæðið. $line$Farið er fram á eftirfarandi:$line$Framhald reiðleiðar frá Kjóavöllum um Grunnvatnsskarð og Grunnuvötn liggi hjá Grunnvatni-syðra á Vatnsendaheiði, NV við Vatnsendaborg. Framhald reiðleiðar þaðan yrði ofan Þverhjalla og í Hjalladal, tengdist reiðvegi ofarlega í Hjalladal. Farið er fram á staðsetningu áningahólfs NV við Vatnsendaveg við Vatnsendaborg (U gerði). Þá er einnig farið fram á að tveir vegslóðar (reiðleiðir) tengist inn á þessa fyrirhuguðu reiðleið, annars vegar slóði frá trjálundi við austanvert Arnarbæli og hinsvegar slóði sem liggur hjá tilraunaborholum á Vatnsendaheiði.
Vísað til endurskoðunar aðalskipulags Kópavogs.