Starfshópur um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 1507357
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 92. fundur
Lagðar fram teikningar fyrir Hringshúsið.
Lagt fram.
02
Forsætisnefnd - 91. fundur
Vettvangsferð forsætisnefndar í Hringshúsið fimmtudaginn 16. mars kl. 16.
03
Forsætisnefnd - 90. fundur
Vettvangsferð forsætisnefndar fyrirhuguð í Hringshúsið fimmtudaginn 16. mars kl. 16.
Dagskrártillaga:
Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að taka málið á dagskrá.
04
Bæjarstjórn - 1134. fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga frá bæjarstjóra um kaup á húsnæði við Digranesveg 1 undir stjórnsýslu bæjarins:$line$"Lagt er til að bæjarstjórn samþykki kaup á fasteigninni að Digranesvegi 1 skv. fyrirliggjandi kauptilboði, að upphæð 585 m.kr. Tilboðið var lagt fram af hálfu Kópavogsbæjar með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Eigandi húsnæðisins, Íslandsbanki, hefur samþykkt tilboðið. Gerð viðauka verði vísað til meðferðar bæjarráðs með vísan til 35. gr. sveitarstjórnarlaga. $line$$line$Jafnframt er lagt til að Hressingarhælið á Kópavogstúni verði fundarsalur bæjarstjórnar og formlegt móttökuhús bæjarins."$line$Jafnframt lögð fram greinargerð með tillögunni, drög að viðauka við fjárhagsáætlun, kauptilboð og söluyfirlit.
Margrét Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég er samþykk þessari tillögu og það er mat mitt að þessi lausn sé farsæl fyrir stjórnsýslu Kópavogs og okkur til sóma.$line$Margrét Friðriksdóttir"$line$$line$Kl. 17.15 vék Margrét Friðriksdóttir forseti bæjarstjórnar af fundi. Jón Finnbogason tók sæti hennar á fundinum. Pétur Hrafn Sigurðsson tók við stjórn fundarins.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17.35. Fundi var fram haldið kl. 17.46.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Hér liggur fyrir ákvörðun sem er mjög farsæl fyrir bæajarskrifstofur Kópavogsbæjar. Niðurstaðan er hagkvæm fjárhagslega, skapar gott aðgengi fyrir bæjarbúa og ber þess öll merki að verða góður vinnustaður. Til hamingju Kópavogsbúar.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Geirdal, Jón Finnbogason, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Ása Richardsdóttir tekur undir bókun meirihlutans.$line$$line$Fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Niðurstaðan sem hér hefur fengist í húsnæðismálum stjórnsýslu Kópavogsbæjar sýnir fram á mikilvægi samráðs og samvinnu í bæjarstjórn. $line$Hér stendur bæjarstjórn Kópavogs einhuga saman. Ef ekki hefði verið fyrir samráðsferli undanfarna mánuði hefðu kaupin á Digranesvegi 1 ekki orðið að veruleika.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Kristinn Dagur Gissurarson"$line$$line$Sverrir Óskarsson tekur undir bókun minnihlutans.
05
Bæjarstjórn - 1132. fundur
Frá bæjarstjóra f.h. starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar, dags. 8. desember, lögð fram tillaga varðandi húsnæði undir bæjarskrifstofur Kópavogs. Hópurinn leggur til að bæjarstjórn velji milli tveggja kosta. Kostur 1, að ráðist verði í viðhald á Fannborg 2 strax og jafnframt verði mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar. Kostur 2, að hafnar verði annars vegar viðræður um nýtt húsnæði í Norðurturni við Smáralind og hins vegar viðræður um nýtt húsnæði við Smáratorg. Jafnframt verði leitað samninga um sölu á fasteignum í Fannborg og mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar. $line$Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni bæjarfulltrúa, lögð fram breytingartillaga á ofangreindri tillögu starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar, sem er samhljóða en við bætist kostur 3, að byggt verði hús sem hannað verður fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar á lóð bæjarins fyrir framan menningar- og tómstundamiðstöðina Molann að Hábraut 2. Hluti bæjarskrifstofanna verði staðsettar í núverandi húsnæði Molans. Jafnframt verði leitað samninga um sölu á fasteignum í Fannborg og mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar. $line$Frá bæjarstjóra, lagðar fram teikningar af tillögum arkitekta að nýjum bæjarstjórnarskrifstofum í húsakynnum gamla Kópavogshælisins ásamt kostnaðaráætlun. Einnig lögð fram kostnaðaráætlun Mannvits um Mola-ráðhús. Loks lagt fram bréf deildarstjóra bókhaldsdeildar, dags. 11. febrúar, þar sem lýst er yfir óánægju með aðgerðarleysi bæjarstjórnar í húsnæðismálum stjórnsýslu bæjarins.
Pétur Hrafn Sigurðsson dró fyrirliggjandi breytingartillögu sína til baka en lagði fram nýja breytingartillögu svohljóðandi:$line$"Bæjarstjórn kjósi sérstaklega um hvern kost;$line$Kostur 1, ráðist verði í viðhald á Fannborg 2 strax. Jafnframt verði mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar.$line$Kostur 2, hafnar verði annars vegar viðræður um nýtt húsnæði í Norðurturni við Smáralind og hins vegar viðræður um nýtt húsnæði við Smáratorg. Jafnframt verði leitað samninga um sölu á fasteignum í Fannborg og mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar. $line$Kostur 3, bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að óska eftir tillögum að teikningum að nánari útfærslu á byggingu sem hönnuð verði fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar á lóð bæjarins fyrir framan menningar- og tómstundamiðstöðina Molann, Hábraut 2. Lögð verði áhersla á form og útfærslu auk þess að taka tillit til annara mannvirkja á svæðinu sem og drög að kostnaðaráætlun. Í tillögunum verði skoðað hvort hluti bæjarskrifstofanna verði staðsettar í núverandi húsnæði Molans. Jafnframt verði leitað samninga um sölu á fasteignum í Fannborg og mögulegar breytingar á skipulagi svæðisins skoðaðar. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 18.10. Fundi var fram haldið kl. 18.57.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd meirihlutans:$line$"Bæjarstjórn samþykkir að farið verði í breytingar á bæjarskrifstofum sem skulu rúmast innan gerðar fjárhagsáætlunar.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.00. Fundi var fram haldið kl. 19.10.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að fyrirliggjandi tillögu starfshópsins um val á kostum verði vísað frá.$line$$line$Frávísunartillaga var samþykkt með sjö atkvæðum gegn fjórum. Atkvæði með frávísun greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson en atkvæði gegn frávísun greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson.$line$$line$Tillaga um viðhald á bæjarskrifstofum sem rúmist innan fjárhagsáætlunar var samþykkt með níu atkvæðum gegn atkvæði Ásu Richardsóttur. Pétur Hrafn Sigurðsson greiddi ekki atkvæði. Atkvæði með tillögunni greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Það vekur furðu mína að bæjarfulltrúar sem hafa ítrekað lýst yfir andstöðu við að gera við húsin á Fannborgarreit, skuli greiða því atkvæði.$line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Það kom mér verulega í opna skjöldu að bæjarfulltrúinn Ása Richarsdóttir skyldi ekki standa við þá tillögu sem starfshópurinn skilaði af sér.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Karen Halldórsdóttir og Guðmdundur Geirdal tóku undir bókun Ármanns Kr. Ólafssonar.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.17. Fundi var fram haldið kl. 19.26.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég hef starfað af fullum heilindum í þessum máli og leitast við að finna sátt. Ég hef ítrekað lýst því yfir að ég sé tilbúin til að að finna bestu lausn sem flestir geti sannmælst um. Að minni hálfu hafa ekki verið nein undirmál. Skyndileg sinnaskipti þeirra fulltrúa meirihlutans sem hafa barist gegn endurbótum á Fannborgarreitnum vekja athygli.$line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.27. Fundi var fram haldið kl. 19.55.
06
Forsætisnefnd - 64. fundur
Breytingartillaga Péturs Hrafns Sigurðssonar er varðar dagskrárlið I á 1132. fundi bæjarstjórnar lögð fram.
07
Bæjarráð - 2809. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram teikningar af tillögu arkitekta að nýjum bæjarstjórnarskrifstofum í húsakynnum gamla Kópavogshælisins ásamt kostnaðaráætlun. Einnig lögð fram áætlun Mannvits um Mola-ráðhús. Loks lagt fram bréf deildarstjóra bókhaldsdeildar, dags. 11. febrúar, þar sem lýst er yfir óánægju með aðgerðarleysi bæjarstjórnar í húsnæðismálum stjórnsýslu bæjarins.
Lagt fram.$line$$line$Gunnar Már Karlsson, deildarstjóri eignadeildar sat fundinn undir þessum lið. $line$Sigurður Guðjón Jónsson frá verkfræðistofunni Mannvit sat fundinn undir þessum lið.$line$$line$Fundarhlé var gert kl. 10.13. Fundi fram haldið kl. 10.30.
08
Bæjarstjórn - 1131. fundur
Frá bæjarstjóra f.h. starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar, dags. 8. desember, lögð fram tillaga varðandi húsnæði undir bæjarskrifstofur Kópavogs. Hópurinn leggur til að bæjarstjórn velji milli tveggja kosta, að ráðist verði í viðhald í Fannborg eða hefja viðræður um kaup á nýju húsnæði og sölu fasteigna í Fannborg. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. desember sl. að tillaga starfshópsins yrði lögð fyrir rýnihópa íbúa í byrjun þessa árs og að tillögur hópanna yrðu kynntar á íbúafundi þegar vinnu rýnihópa yrði lokið. Að þessu loknu myndi bæjarstjórn taka endanlega afstöðu eigi síðar en á fundi þann 26. janúar sl.$line$Lögð fram tillaga um athugun á kostum og göllum þess að nýta Kópavogshæli undir fundarsal bæjarstjórnar. Lögð fram tillaga um að komi til sölu fasteigna í Fannborg verði sett í forgang samstarf við byggingarsamvinnufélög, leigufélög og bygging félagslegra íbúða.
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarstjórn samþykkir að fresta tillögu starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Jafnframt felur bæjarstjórn umhverfissviði Kópavogsbæjar að kanna kostnað við að byggja ráðhús sem verður hannað fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar á lóð bæjarins sem er fyrir framan menningar- og tómstundarmiðstöðina Molann að Hábraut 2, gegnt Gerðarsafni og Salnum að Hamraborg 4 og 6.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.00. Fundi var fram haldið kl. 19.40.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu um frestun á afgreiðslu tillögu starfshóps með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði, þeir Guðmundur Gísli Geirdal og Karen Elísabet Halldórsdóttir.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu um athugun á kostum og göllum þess að nýta Kópavogshæli undir fundarsal bæjarstjórnar með tíu atkvæðum. Birkir Jón Jónsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu um forgang um samstarf við byggingarsamvinnufélög og leigufélög og bygging félagslegra íbúða komi til sölu fasteigna í Fannborg með tíu atkvæðum. Sverrir Óskarsson greiddi ekki atkvæði.
09
Bæjarráð - 2806. fundur
Ráðgjafar frá Capacent gerðu grein fyrir niðurstöðu rýnivinnu íbúa.
Lagt fram
10
Bæjarstjórn - 1128. fundur
Frá bæjarstjóra f.h. starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar, dags. 8. desember, lögð fram tillaga varðandi húsnæði undir bæjarskrifstofur Kópavogs. Starfshópurinn komst ekki að niðurstöðu í vinnu sinni en var sammála um að nauðsynlegt væri að bæjarstjórn taki ákvörðun fljótt enda ástand núverandi húsnæðis óviðunandi. Hópurinn leggur til að bæjarstjórn velji milli tveggja kosta, að ráðast í viðhald í Fannborg eða hefja viðræður um kaup á nýju húsnæði og sölu fasteigna í Fannborg.$line$Einnig lögð fram greinargerð bæjarstjóra um vinnu starfshópsins. Loks lögð fram áskorun til bæjarstjórnar frá starfsfólki bæjarskrifstofa Kópavogs vegna húsnæðismála, dags. 10. desember.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að afgreiðslu tillögunnar verði vísað til næsta fundar bæjarstjórnar.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 18.05. Fundi var fram haldið kl. 18.42.$line$$line$Kl. 18.42 vék Pétur Hrafn Sigurðsson af fundi og tók Bergljót Kristinsdóttir sæti hans.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.35. Fundi var fram haldið kl. 20.05.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að tillaga stýrihópsins verði lögð fyrir rýnihópa íbúa í byrjun næsta árs. Þá verði tillögur hópsins kynntar á íbúafundi þegar vinnu rýnihópa er lokið. Bæjarstjórn taki endanlega afstöðu eigi síðar en á fundi sínum þann 26. janúar 2016.
11
Bæjarráð - 2800. fundur
Frá starfshópi um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar sem skipaður var þann 21. júlí sl., lögð fram tillaga að því er varðar húsnæði undir bæjarskrifstofur Kópavogs.
Lagt fram.$line$$line$Hlé var gert á fundinum kl. 08:39, hélt fundur áfram 08:48.
12
Bæjarstjórn - 1124. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 9. október, lögð fram beiðni um framlengingu á störfum starfshóps um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar til 1. nóvember nk.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 samhljóða atkvæðum að veita starfshópi um húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar umboð til að starfa áfram til 1. nóvember nk. Krstinn Dagur Gissurarson greiddi ekki atkvæði.
13
Bæjarstjórn - 1120. fundur
Forseti ákvað að dagskrárliðurinn yrði til afgreiðslu síðastur á dagskrá. $line$$line$Bæjarstjórn kaus aðalmenn í starfshóp um húsnæðismál stjórnsýslu:$line$$line$Af A-lista$line$Ármann Kr. Ólafsson$line$Karen Halldórsdóttir$line$Sverrir Óskarsson$line$$line$Af B-lista$line$Ása Richardsdóttir$line$Birkir Jón Jónsson$line$$line$Áheyrnarfulltrúi$line$Arnþór Sigurðsson