Bæjarráð, dags. 3. september 2015.
Málsnúmer: 1508015F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1122. fundur
2786. fundur bæjarráðs í 19. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Þrátt fyrir fjölgun íbúa í Kópavogi um rúm 2% á fyrstu 6 mánuðum ársins 2015 og stöðugt verðlag er rekstrarniðurstaða A hluta bæjarsjóðs neikvæð um 362 m.kr. Ef horft er til rekstrarniðurstöðu fyrstu sex mánaða ársins 2014 þá er niðurstaðan um 600 m.kr. lakari. Jafnframt er fyrirsjáanlegt að skuldbindingar og útgjöld, m.a. vegna lífeyrissjóðs og starfsmats, mun leggjast þungt á fjárhagslega stöðu bæjarins á seinni hluta ársins.$line$Kópavogur er eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins og því mikilvægt að reksturinn skili afgangi til að lækka skuldir - ekki er endalaust hægt að reiða sig á sölu eigna. Skuldir og skuldbindingar bæjarins um mitt þetta ár nema 43,8 milljörðum króna. Það jafngildir um það bil 1,3 milljón kr. á hvern bæjarbúa. Í þessari tölu eru ekki skuldbindingar gagnvart samlagsfélögunum Strætó, Sorpu og Slökkviliðsins. Jafnframt er ekki gert ráð fyrir frekari skuldsetningu ef til kæmi að kaupa þrjár hæðir í Norðurturninum undir bæjarskrifstofur.$line$Undirritaður hefur ítrekað bent á og lagt til að innri endurskoðun verði tekin upp hjá Kópavogsbæ sem hafi m.a. það að markmiði að stuðla að hagkvæmari og skilvirkari nýtingu fjármuna. Ekkert bólar hins vegar á því hjá meirihlutanum að slík innri endurskoðun verði sett á fót.$line$Það er áhyggjuefni að fyrsti árshlutareikningur núverandi meirihluta skuli ekki skila meiri árangri en raun ber vitni. Í raun er um afturför að ræða en ekki framfarir í rekstri bæjarins. Það er augljóst að rekstur bæjarins þarfnast endurskoðunar. Slíkt er einfaldlega óumflýjanlegt og nauðsynlegt.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Tap Kópavogsbæjar á rekstri A hluta fyrstu 6 mánuði ársins er langt umfram það sem áætlað var í fjárhagsáætlun ársins eða 362 milljónir króna sem er 55% hærra en reiknað var með. Ljóst er að bæjarstjórn verður að bregðast við. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar hefði betur nýtt lögbundna skattstofna líkt og Samfylkingin lagði til við síðustu fjárhagsáætlanagerð. Tekjustofnar sveitarfélaga eru fáir og mikilvægt að endurskoða hlutfall og samsetningu þeirra. Sterk rök eru t.d. fyrir því að sveitarfélög ættu að fá hlutdeild í virðisaukaskatti, til framtíðar. Fjárhagur Kópavogsbæjar fyrstu 6 mánuði ársins 2015 er ekki í góðum málum og ljóst að afkoman getur enn versnað í tengslum við endurútreikning lífeyrisskuldbindinga. Bæjarstjórn Kópavogs bíður vandasamt verk og þörf er á útsjónasemi og samstöðu við gerð næstu fjárhagsáætlunar.$line$Ása Richardsdóttir, Kristín Sævarsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Bæjarfulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar á fyrri hluta árs var í samræmi við fjárhagsáætlun. Að jafnaði kemur rekstur fyrri hluta árs verr út en á seinni hluta vegna þess að á fyrri hluta árs falla aðeins um 48-49% af skatttekjum ársins en stærri hluti útgjalda á ákveðnum sviðum. Gert hafði verið ráð fyrir 117 milljón króna tapi á tímabilinu en niðurstaðan varð 128 milljón króna tap. Skýringin er einkum lægri skatttekjur en áætlað hafði verið, líkt og hjá öðrum sveitarfélögum. Það verður að teljast nákvæmt að einungis muni 11 m.kr. þegar skatttekjur fyrri hluta ársins eru ríflega 9 m.kr. Þarna skeikar því aðeins broti úr prósenti. Þá er rétt að taka fram að ekki er gert ráð fyrir óreglulegum tekjum og því er ekki verið að reiða sig á sölu eigna og þ.a.l. farið rangt með í bókun fulltrúa Framsóknarflokksins. Skuldahlutfall Kópavog shefur lækkað hratt á undanförnum árum og mun gera það áfram ef verðbólgudraugurinn fer ekki á kreik eins og svo oft áður í kjölfar bólginna kjarasamninga.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"