Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Brekkuhvarf 22. Þóranna S. Sverrisdóttir. Beiðni um umsögn vegna nýs rekstrarleyfis.

Málsnúmer: 1508192

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2784. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 10. ágúst, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Þórönnu S. Sverrisdóttur, kt. 080764-4809, um nýtt rekstrarleyfi fyrir íbúðir í flokki I, að Brekkuhvarfi 22, Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585-2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fjórum atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4. mgr. 25. gr. lögreglusamþykktar nr. 675/2015.