Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Víðihvammur 26. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 15082225

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1126. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 27. október, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa að lokinni kynningu erindi Stáss arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. 3.7.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Víðihvammi 26. Í breytingunni felst að núverandi útbygging á vesturhlið verði rifin og í stað hennar reist rúmlega 8 m2 viðbygging. Þak viðbyggingar verður nýtt sem svalir. Hæð viðbyggingar verður 5,3m. Að auki stækkar kvistur á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 3.7.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 23 og 28; Fífuhvamms 33 og 35. Kynningu lauk 23.10.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2794. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 27. október, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa að lokinni kynningu erindi Stáss arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. 3.7.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Víðihvammi 26. Í breytingunni felst að núverandi útbygging á vesturhlið verði rifin og í stað hennar reist rúmlega 8 m2 viðbygging. Þak viðbyggingar verður nýtt sem svalir. Hæð viðbyggingar verður 5,3m. Að auki stækkar kvistur á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 3.7.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 23 og 28; Fífuhvamms 33 og 35. Kynningu lauk 23.10.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1267. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Stáss arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. 3.7.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Víðihvammi 26. Í breytingunni felst að núverandi útbygging á vesturhlið verði rifin og í stað hennar reist rúmlega 8 m2 viðbygging. Þak viðbyggingar verður nýtt sem svalir. Hæð viðbyggingar verður 5,3m. Að auki stækkar kvistur á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 3.7.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 23 og 28; Fífuhvamms 33 og 35. Kynningu lauk 23.10.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Stáss arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. 3.7.2015 þar sem óskað er eftir breytingum á Víðihvammi 26. Í breytingunni felst að núverandi útbygging á vesturhlið verði rifin og í stað hennar reist rúmlega 8 m2 viðbygging. Þak viðbyggingar verður nýtt sem svalir. Hæð viðbyggingar verður 5,3m. Að auki stækkar kvistur á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 3.7.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 23 og 28; Fífuhvamms 33 og 35.