Austurkór 42 og 44. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 15082227
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1128. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 1. desember, lagt fram að nýju erindi Byggvír ehf., f.h. lóðarhafa, dags. 17.8.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 42 og 44. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram breytt tillaga dags. 27.11.2015 þar sem komið er til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Í breytingunni felst að aðkomukótar Austurkórs 42 og 44 eru lækkaðir um 20 cm og hámarkshæð er lækkuð úr 7,5 m í 7,2 m. Byggingarreitur er því 50 cm lægri en heimilt er í gildandi deiliskipulagi. Hækkun byggingarreits á vesturhliðum húsanna verður því 90 cm í stað 1,2 m sbr. uppdrætti dags. 17.11.2015. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 27.11.2015 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2799. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 1. desember, lagt fram að nýju erindi Byggvír ehf., f.h. lóðarhafa, dags. 17.8.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 42 og 44. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram breytt tillaga dags. 27.11.2015 þar sem komið er til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Í breytingunni felst að aðkomukótar Austurkórs 42 og 44 eru lækkaðir um 20 cm og hámarkshæð er lækkuð úr 7,5 m í 7,2 m. Byggingarreitur er því 50 cm lægri en heimilt er í gildandi deiliskipulagi. Hækkun byggingarreits á vesturhliðum húsanna verður því 90 cm í stað 1,2 m sbr. uppdrætti dags. 17.11.2015. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 27.11.2015 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1269. fundur
Lagt fram að nýju erindi Byggvír ehf., f.h. lóðarhafa, dags. 17.8.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 42 og 44. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Þá lögð fram breytt tillaga dags. 27.11.2015 þar sem komið er til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Í breytingunni felst að aðkomukótar Austurkórs 42 og 44 eru lækkaðir um 20 cm og hámarkshæð er lækkuð úr 7,5 m í 7,2 m. Byggingarreitur er því 50 cm lægri en heimilt er í gildandi deiliskipulagi. Hækkun byggingarreits á vesturhliðum húsanna verður því 90 cm í stað 1,2 m sbr. uppdrætti dags. 17.11.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 27.11.2015 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1267. fundur
Lagt fram að nýju erindi Byggvír ehf., f.h. lóðarhafa, dags. 17.8.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 42 og 44. Í breytingunni felst að vegghæð húsanna á vesturhlið og að hluta til á suður- og norðurhlið hækkar úr 6,3m í 7,5m sbr. uppdrætti dags. 13.8.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkórs 12, 14, 16, 40, 46 og 48. Kynningu lauk 12.10.2015. Athugasemd barst frá Árna Kristni Gunnarssyni og Regínu Diljá Jónsdóttur, Austurkór 12, dags. 8.10.2015; frá Eldey ehf, lóðarhafa Austurkór 14 og 16, dags. 12.10.2015.
Frestað. Skipulagsnefnd vísaði málinu til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
05
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Lagt fram erindi Byggvír ehf., f.h. lóðarhafa, dags. 17.8.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Austurkórs 42 og 44. Í breytingunni felst að vegghæð húsanna á vesturhlið og að hluta til á suður- og norðurhlið hækkar úr 6,3m í 7,5m sbr. uppdrætti dags. 13.8.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkórs 12, 14, 16, 40, 46 og 48.