Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smiðjuvegur 3a. Smádreifistöð OR.

Málsnúmer: 15082873

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1127. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 10. nóvember, lagt fram að nýju erindi Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að stofna nýja lóð að Smiðjuvegi 3a fyrir smádreifistöð. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað. Lagt fram minnisblað frá samráðsfundi sem haldinn var 5.11.2015. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 atkvæðum gegn atkvæði Ásu Richardsdóttur. $line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið.

02

Bæjarráð - 2796. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 10. nóvember, lagt fram að nýju erindi Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að stofna nýja lóð að Smiðjuvegi 3a fyrir smádreifistöð. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað. Lagt fram minnisblað frá samráðsfundi sem haldinn var 5.11.2015. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1268. fundur

Lagt fram að nýju erindi Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að stofna nýja lóð að Smiðjuvegi 3a fyrir smádreifistöð. Á fundi skipulagsnefndar 26.10.2015 var málinu frestað. $line$$line$Lagt fram minnisblað frá samráðsfundi sem haldinn var 5.11.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Anna María Bjarnadóttir, Kristinn Dagur Gissurarson og Guðmundur Geirdal voru hlynnt því að samþykkja tillöguna.$line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Helga Elínborg Jónsdóttir voru andsnúnar því að samþykkja tillöguna.

04

Skipulagsnefnd - 1267. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að stofna nýja lóð að Smiðjuvegi 3a fyrir smádreifistöð. Lóðin verður 4x4 m að stærð og gert er ráð fyrir bílastæði fyrir þjónustubíl innan lóðarinnar sbr. uppdráttum frá Argos arkitektum dags. 21.6.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Smiðjuvegar 1, 3 og 5; Vallhólma 22, 24. Kynningu lauk 12.10.2015. Athugasemdir bárust frá Skika ehf., eiganda Smiðjuvegar 3, dags. 6.10.2015; frá Bjarna Bjarnasyni og Kristínu Jónsdóttur, Vallhómla 24, dags. 9.10.2015; frá Helgu Sigurðardóttur og Birgi Hjaltalín, Vallhólma 22, dags. 11.10.2015.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 26.10.2015.

Frestað.

05

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Lagt fram erindi Orkuveitu Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að stofna nýja lóð að Smiðjuvegi 3a fyrir smádreifistöð. Lóðin verður 4x4 m að stærð og gert er ráð fyrir bílastæði fyrir þjónustubíl innan lóðarinnar sbr. uppdráttum frá Argos arkitektum dags. 21.6.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Smiðjuvegar 1, 3 og 5; Vallhólma 22, 24.