Athugun á svigrúmi til hækkunar gjaldskrár í Knatthúsum bæjarins.
Málsnúmer: 15083717
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2786. fundur
Frá bæjarstjóra, erindi sem frestað var á síðasta fundi.
Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Það er mikilvægt að verða við óskum um aukinn fjölda tíma í íþróttahúsum bæjarins til knattspyrnuiðkunar til að koma til móts við aukinn fjölda iðkenda. $line$Ekki er hægt að hækka gjaldskrá um 33% með þeim litla fyrirvara sem lagt er til. $line$Lagt er til að gjaldskrá hækki um áramótin og að íþróttafélögin fái úthlutað þeim átta aukatímum sem óskað er eftir frá og með þeim tíma. $line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
02
Bæjarráð - 2785. fundur
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 25. ágúst, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til hækkunar gjaldskrár um útleigutíma í knatthúsum bæjarins.
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.