Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um móttöku flóttafólks.

Málsnúmer: 1509172

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1122. fundur

Tillaga frá bæjarfulltrúum Samfylkingar um móttöku flóttafólks: "Kópavogsbær er reiðubúinn til að taka á móti hópum flóttafólks. Bæjarstjóra er falið að ganga til samninga við Velferðarráðuneytið um móttöku flóttafólks. Sérstaklega skal horft til flóttafólks frá Sýrlandi, en þó án þess að aðrir hópar séu útilokaðir. Fjöldi flóttafólks sem Kópavogsbær býður búsetu og aðstoð, skal ekki fyrirfram ákveðinn en þó skal gert ráð fyrir að fjöldi verði ekki undir 35 einstaklingum á næstu þremur árum."

Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi viðaukatillögu:$line$"Jafnframt skal skoðað hvernig hægt er að styðja við félagasamtök og aðra aðila sem vinna að málefnum flóttafólks á vettvangi.$line$Sérstaklega skal horft til viðkvæmra hópa, s.s barna og fjölskyldna þeirra, vegalausra barna, eða annarra sem hætta er á að þoli verr að búa við ótryggar aðstæður til lengri tíma. Því þarf að tryggja þessum hópum tafarlaust öryggi og vernd, bæði á vettvangi og koma þeim sem fyrst í öruggt skjól.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17.32. Fundi var fram haldið kl. 18.24.$line$$line$Forseti greindi frá því að tillaga Ásu Richardsdóttur og Kristínar Sævarsdóttur hefði verið dregin til baka og væri viðaukatillaga Margrétar Júlíu Rafnsdóttur því ekki til afgreiðslu.$line$$line$Lögð fram eftirfarandi tillaga:$line$"Kópavogsbær lýsir sig reiðubúinn til að taka á móti flóttafólki. Bæjarstjóra er falið að koma þeirri afstöðu á framfæri við Velferðarráðuneytið og vinna að frekari undirbúningi í samvinnu við ráðuneyti, félagsmálastjóra og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. $line$Kópavogsbær vill sýna ábyrgð og telur eðilegt að bærinn, sem næst stærsta sveitarfélag landsins, bjóði flóttafólki aðstoð, í hlutfalli við stærð sína.$line$Margrét Friðriksdóttir, Sverrir Óskarsson, Ása Richardsdóttir"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með 11 atkvæðum.