Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gulaþing 25. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1509183

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1123. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, lagt fram erindi Svövu Bjarkar Jónsdóttur arkitekts, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25. Í breytingunni felst að stærð og lögun byggingarreits breytist. Aðkoma að lóð verður frá suðausturhlið í stað norðvesturhlið, en þó verði hægt að aka inn á lóð frá norðvesturhlið. Þrjú bílastæði verði á lóð. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

02

Skipulagsnefnd - 1265. fundur

Lagt fram erindi Svövu Bjarkar Jónsdóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 9.9.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25. Í breytingunni felst að stærð og lögun byggingarreits breytist en heildarbyggingarmagn er óbreytt, 250 m2, og nýtingarhlutfall 0,14. Aðkoma að lóð verður frá suðausturhlið í stað norðvesturhlið en þó verði hægt að aka inn á lóð frá norðvesturhlið. Þrjú bílastæði verða á lóð. Gólfkóti hækkar úr 90,4 í 91 og hækkar byggingarreitur því um 60cm sbr. uppdrætti dags. 9.9.2015.

Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.