Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Naustavör 22-30. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1509308

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1123. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Naustavarar 22-30. Í breytingunni felst að um þriðjungur þakflatar fer 10 cm uppfyrir hámarkshæð byggingarreitar samkvæmt gildandi skipulagsskilmálum, en lægra þak hússins á þriðju og fjórðu hæð fer 0,5 metra upp fyrir leyfða hæð. Skipulagsnefnd taldi umrædda breytingu ekki varða hagsmuni annarra en lóðarhafa og samþykkti því breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1265. fundur

Lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa dags. 8.9.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Naustavarar 22-30. Í breytingunni felst að um þriðjungur þakflatar fer 10 cm uppfyrir hámarkshæð byggingarreitar samkvæmt gildandi skipulagsskilmálum en lægra þak hússins á þriðju og fjórðu hæð fer 0,5 metra upp fyrir leyfða hæð sbr. uppdráttum dags. 8.9.2015.

Guðmundur Gunnlaugsson, arkitekt, gerði grein fyrir tillögunni.$line$$line$Skipulagsnefnd telur umrædda breytingu ekki varða hagsmuni annarra en lóðarhafa og samþykkti því breytinguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Skipulagsnefnd óskaði eftir að í framhaldinu verði lagðar fram skýrari áætlanir um framkvæmdir og hönnun svæðisins.