Vatnsendablettur 72. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1509356
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1132. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 16. febrúar, lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lögð fram breytt tillaga dags. 18.1.2016 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18.1.2016 þar sem komið er til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var málinu frestað. Skipulagsnefnd samþykkti breytta tillögu dags. 18.1.2016 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga. nr. 123/2010 ásamt umsögn og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagnefndar með níu atkvæðum gegn atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar og Ásu Richardsdóttur.
02
Bæjarráð - 2809. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 16. febrúar, lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lögð fram breytt tillaga dags. 18.1.2016 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18.1.2016 þar sem komið er til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var málinu frestað. Skipulagsnefnd samþykkti breytta tillögu dags. 18.1.2016 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga. nr. 123/2010 ásamt umsögn og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga dags. 18.1.2016 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18.1.2016 þar sem komið er til móts við framkomnar athugasemdir og ábendingar. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var málinu frestað.
Skipulagsnefnd samþykkti breytta tillögu dags. 18.1.2016 með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga. nr. 123/2010 ásamt umsögn. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Geirdal samþykktu tillöguna.$line$Ása Richardsdóttir var ekki samþykk tillögunni.$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Margrét Júlía Rafnsdóttir sátu hjá.$line$$line$Lögð fram bókun Ásu Richardsdóttur:$line$Undirrituð leggst gegn breyttri deiliskipulagstillögu. Ég tel að yfirbragð hverfis breytist um of með því að skipta umræddri lóð upp í þrjár lóðir. Fyrra deiliskipulag gerði ráð fyrir einni íbúð og hesthúsi nú er gert ráð fyrir sjö íbúðum í þremur húsum. Þrátt fyrir breytingar, lækkun og hliðrun húss og fækkun um tvær íbúðir tel ég gengið um of á rétt íbúa í nágrenni við þessa breytingu og get því ekki stutt hana.$line$Ása Richardsdóttir
04
Skipulagsnefnd - 1271. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga dags. 18.1.2016 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18.1.2016.
Frestað.
05
Skipulagsnefnd - 1269. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Í tillögunni felst að lóðinni er skipt upp í þrjár lóðir, Ögurhvarf 4a, 4b og 4c. Núverandi lóð minnkar og lóðarmörk færast til norðurs, lóðin verður eftir breytingu 3490 m2. Suðurlóðarmörk Ögurhvarfs 4 breytast og lóð stækkar um 35m2. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4b verður 1.150 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjórbýlishús á tveimur hæðum. Hámarksflatarmál grunnflatar hússins er um 250 m2 og hámarksbyggingarmagn er um 460 m2. Ekki er heimilt að hafa heshús á lóðinni. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4c verður 1.340 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjölbýlishús á tveimur hæðum,með fimm íbúðum. Hámarksflatarmál grunnflatar hússins er um 270 m2 og hámarksbyggingarmagn er um 600 m2. Opinn bílakjallari er undir húsunum. Ekki er heimilt að hafa heshús á lóðinni sbr. uppdrætti dags. 14.9.2015. Á fundi skipulagsnenfndar 14.9.2015 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 5.10.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 8.10.2015. Að auki var sent dreifbréf til næstu nágranna. Kynningu lauk 27.11.2015. Athugasemdir bárust frá Katrínu Ingu Geirsdóttur og Magnúsi Arngrímssyni, Dimmihvarfi 19a, dags. 5.11.2015 og 11.11.2015; frá Emiliönu Torrini, Dimmuhvarfi 19, dags. 17.11.2015; frá Einari Óskarssyni og Lene Grönholm, Grundarhvarfi 27, dags. 10.11.2015; Kristjáni Friðrik Karlssyni, Dimmuhvarfi 25, dags. 17.11.2015.
Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
06
Bæjarstjórn - 1123. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, lögð fram tillaga lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Í tillögunni felst að lóðinni er skipt upp í þrjár lóðir, Ögurhvarf 4a, 4b og 4c. Núverandi lóð minnkar og lóðarmörk færast til norðurs, lóðin verður eftir breytingu 3490 m2. Suðurlóðarmörk Ögurhvarfs 4 breytast og lóð stækkar um 35m2. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4b verður 1.150 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjórbýlishús á tveimur hæðum. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4c verður 1.340 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjölbýlishús á tveimur hæðum, með fimm íbúðum. Hámarksflatarmál grunnflatar hússins er um 270 m2 og hámarksbyggingarmagn er um 600 m2. Opinn bílakjallari er undir húsunum. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
07
Skipulagsnefnd - 1265. fundur
Lögð fram tillaga lóðarhafa dags. 14.9.2015 að breyttu deiliskipulagi Vatnsendabletts 72. Í tillögunni felst að lóðinni er skipt upp í þrjár lóðir, Ögurhvarf 4a, 4b og 4c. Núverandi lóð minnkar og lóðarmörk færast til norðurs, lóðin verður eftir breytingu 3490 m2. Suðurlóðarmörk Ögurhvarfs 4 breytast og lóð stækkar um 35m2. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4b verður 1.150 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjórbýlishús á tveimur hæðum. Hámarksflatarmál grunnflatar hússins er um 250 m2 og hámarksbyggingarmagn er um 460 m2. Ekki er heimilt að hafa heshús á lóðinni. Nýja lóðin, Ögurhvarf 4c verður 1.340 m2 að stærð og gert er ráð fyrir að þar rísi fjölbýlishús á tveimur hæðum,með fimm íbúðum. Hámarksflatarmál grunnflatar hússins er um 270 m2 og hámarksbyggingarmagn er um 600 m2. Opinn bílakjallari er undir húsunum. Ekki er heimilt að hafa heshús á lóðinni sbr. uppdrætti dags. 14.9.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.