Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Opinber birting á upplýsingum. Beiðni um skýringar.

Málsnúmer: 1509725

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá Fjármálaeftirlitinu, dags. 15. febrúar, ákvörðun um stjórnvaldssekt vegna brots Kópavogsbæjar.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður telur að FME hafi ekki gætt meðalhófs við meðferð þessa máls.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Ása Richardsdóttir tekur undir bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Niðurstaða FME er afleiðing aðgerða á síðasta kjörtímabili þar sem fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Næst besta flokksins tóku saman höndum við tvo fulltrúa úr Sjálfstæðisflokknum og keyra í gegn nánast með óeðlilegum hætti, tilllögur sem voru lagðar óvænt fram í bæjarstjórn um að byggja 30 til 40 íbúðir og tvö fjölbýlishús.$line$$line$Það tók Fjármálaeftirlitið og Kauphöllina 2 ár að ljúka sínum viðbrögðum vegna máls, þar sem sama stjórnvald gerir kröfu um að Kópavogsbær ljúki sínum viðbrögðum við óvæntu og illa ígrunduðu máli sem ætlað var að valda pólitískum usla á innan við fjórum klukkustundum. Stappar þetta nærri því að vera hreinlega óeðlileg afskipti af störfum bæjarstjórnar Kópavogs. Það hljóti í ljósi þessa máls og fleiri nýlegra mála á vettvangi eftirlitsstjórnvalda að ræða hvort menn hafi misst sjónar á raunverulegu hlutverki sínu og séu farnir að valda meira tjóni á markaði en að vernda hagsmuni hans. Skemmst er að minnast frumhlaups þeirra í FME um birtingu gagnsæistilkynningar um Sparisjóð Þingeyinga, sem er ein örfárra fjármálastofnana sem komst í gegnum hrunið án ríkisaðstoðar.$line$$line$Allavega, mér ofbýður. Hvernig væri nú að þessir eftirlitsaðilar snéru sér að verkefnum sem einhverju máli skipta fyrir þetta samfélag.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson og Theódóra Þorsteinsdóttir taka undir bókun Ármanns Kr. Ólafssonar.

02

Bæjarráð - 2789. fundur

Frá Fjármálaeftirlitinu, dags. 22. september, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir sjónarmiðum og útskýringum bæjarins í tengslum við skuldaaukningu skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 14.1.2015 og opinbera birtingu upplýsinga í þeim efnum.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu fjármálastjóra og bæjarlögmanns.