Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um viðræður um úthlutun lóðar á Kársnesi fyrir höfuðstöðvar WOW air.

Málsnúmer: 1510046

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2851. fundur

Lögð fram drög að samkomulagi milli TF Kóp ehf., og Kópavogsbæjar, um lóðarleigusamning fyrir lóðirnar Vesturvör 38a og Vesturvör 38b.

Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum.

02

Bæjarráð - 2838. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 17. september, lagt fram erindi um útfærslu á skipulagi við Vesturvör á Kársnesi vegna beiðni Wow air um að byggja hótel á svæðinu við höfuðstöðvar félagsins.

Bæjarráð veitir heimild til skipulagsstjóra að vinna áfram með framkomnar hugmyndir í samvinnu við Wow air. Samþykkt með fimm atkvæðum.

03

Bæjarstjórn - 1135. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 21. mars 2016, varðandi erindi WOW air, dags. 17. febrúar, þar sem óskað var eftir viðræðum um úthlutun lóðar við Kársnes fyrir höfuðstöðvar WOW air. Lagt er til að lóðunum nr. 38a og b við Vesturvör verði úthlutað til WOW air undir nýjar höfuðstöðvar. Jafnframt er lagt til að teknar verði upp frekari viðræður við félagið um nánari útfærslu hugmynda þess um staðsetningu hótelbyggingar vestast á Kársnesi. Bæjarráð samþykkti með fimm atkvæðum að úthluta lóðunum Vesturvör 38a og b til WOW air undir nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.

04

Hafnarstjórn - 102. fundur

Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri gerði grein fyrir málinu auk þess sem hann fór yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í nágrenni hafnarinnar. $line$Þá var rætt um mikilvægi tengingar (brúnnar) yfir Fossvog í tengslum við uppbyggingu á nesinu.

Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með væntanlega uppbyggingu.

05

Bæjarráð - 2814. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 21. mars 2016, varðandi erindi WOW air, dags. 17. febrúar, þar sem óskað var efit viðræðum um úthlutun lóðar við Kársnes fyrir höfuðstöðvar WOW air. Lagt er til að lóðunum nr. 38a og b við Vesturvör verði úthlutað til WOW air undir nýjar höfuðstöðvar. Jafnframt er lagt til að teknar verði upp frekari viðræður við félagið um nánari útfærslu hugmynda þess um staðsetningu hótelbyggingar vestast á Kársnesi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta lóðunum Vesturvör 38a og b til WOW air undir nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins.

06

Bæjarráð - 2811. fundur

Frá Wow air, dags. 17. febrúar, lagt fram bréf þar sem óskað er áframhaldandi viðræðna um úthlutun lóðanna að Vesturvör nr. 29, 38 og 50.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.

07

Bæjarráð - 2795. fundur

Frá bæjarstjóra vegna erindis WOW air, dags. 30. september sl., þar sem óskað var eftir viðræðum við Kópavogsbæ um úthlutun lóðar á Kársnesi undir nýjar höfuðstöðvar WOW air. Bæjaráð vísaði á fundi sínum þann 8. okt. erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu. Lagt er til að bæjarráð feli bæjarstjóra að ganga til viðræðna við fulltrúa WOW air um staðsetningu nýrra höfuðstöðva félagsins vestast á Kársnesi á svæði sem er sunnan Vesturvarar 40 og 48 og vestan Vesturvarar 29. Svæðið er að hluta deiliskipulagt fyrir atvinnustarfsemi og því ljóst að gera þarf breytingar á skipulagi umrædds svæðis svo hugmyndir félagsins um 9.000 til 12.000 m2 atvinnu- og skrifstofuhúsnæði nái fram að ganga. Bæjarráð vísar erindi WOW air um hugmyndasamkeppni um breytingar á skipulagi svæðisins svo og hönnun höfuðstöðva félagsins vestast á Kársnesi til skipulagsnefndar til úrvinnslu.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu bæjarstjóra með fimm atkvæðum.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson bókar:$line$"Samþykki þessa tillögu með þeim fyrirvara að hún hafi ekki áhrif á þá vinnu sem í gangi er vegna alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni NBCC á Kársnesi."$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson bókar:$line$"Ég tek undir bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar."

08

Bæjarráð - 2791. fundur

Frá WOW air, dags. 30. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir viðræðum við Kópavogsbæ um úthlutun lóðar á Kársnesi undir nýjar höfuðstöðvar WOW air.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.