Tillaga að breytingu á frístundastyrkjum
Málsnúmer: 1510134
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 52. fundur
Lagt fram erindi frá foreldrafélagi Kópavogsskóla, dags. 9. september, þar sem lagt er til að skilyrði fyrir frístundastyrkjum verði rýmkuð til að hvetja ungmenni til íþróttaiðkunar en bæjarráð vísaði erindinu til afgreiðslu íþróttaráðs á fundi sínum þann 8. okt. sl.
Almennar umræður. $line$Íþróttaráð telur ekki ástæðu til að breyta nýsamþykktum reglum um frístundastyrki að svo komnu máli en telur hins vegar rétt að umræða sem tengist breytingum á þeim reglum sem hér um ræðir verði tekin í tengslum við þá vinnu sem nú er í gangi við lýðheilsustefnu Kópavogs varðandi Heilsueflandi samfélag.
02
Bæjarráð - 2791. fundur
Frá foreldrafélagi Kópavogsskóla, dags. 9. september, lagt fram erindi þar sem lagt er til að skilyrði fyrir frístundastyrkjum verði rýmkuð til að hvetja ungmenni til íþróttaiðkunar.
Bæjarráð vísar erindinu til íþróttaráðs til afgreiðslu.