Skotfélag Kópavogs, styrkumsókn 2015 v. endurnýjunar á æfinga-og keppnisbúnaði.
Málsnúmer: 1510214
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 52. fundur
Tekið til afgreiðslu erindi frá Skotíþróttafélagi Kópavogs dags. 7. okt. sl., þar sem félagið sækir um styrk til endurnýjunar á æfinga- og keppnisbúnaði félagsins í Digranesi. Erindinu var frestað á síðasta fundi ráðsins og íþróttafulltrúa falið að skoða hvort að heimild verði veitt í verkefnið við gerð næstu fjárhagsáætlunar
Íþróttaráð synjar erindinu að svo komnu máli. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni á næsta ári til að verða við óskum félagsins.$line$Þá vísar íþróttaráð til bókunar undir 1. dagskrárlið fundarins er varðar samantekt/yfirlit á keppnisbúnaði íþróttamannvirkja og ástandi hans.
02
Íþróttaráð - 51. fundur
Lagt fram erindi frá Skotíþróttafélagi Kópavogs dags. 7. okt. sl., þar sem félagið sækir um styrk til endurnýjunar á æfinga- og keppnisbúnaði félagsins í Digranesi.
Frestað. Íþróttafulltrúa falið að skoða hvort að heimild verði veitt í verkefnið við gerð næstu fjárhagsáætlunar.