Hestheimar 14-16, Spretthöllin. Umsókn Kiwanisklúbbsins Heklu um tímabundið áfengisleyfi. Beiðni um umsögn.
Málsnúmer: 1510236
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2792. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 12. október, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kiwanisklúbbsins Heklu, kt. 651090-1569, um tímabundið áfengisleyfi vegna Lambréttardags þann 16. október 2015, frá kl. 19:00-00:00, í Spretthöllinni, að Hestheimum 14-16, Kópavogi, skv. 18. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. lögreglusamþykktar fyrir Kópavogsbæ nr. 675/2015.