Til baka í fundargerðir
Umsókn um styrk vegna Vatnaskógar. Umsögn bæjarritara.
Málsnúmer: 1510294
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2796. fundur
Frá bæjarritara, dags. 5. nóvember, lögð fram umsögn um umsókn Skógarmanna KFUM um styrk til að ljúka byggingu skála í Vatnaskógi, æskulýðsmiðstöð fyrir börn og ungmenni, þar sem lagt er til að veittur verði styrkur að upphæð kr. 200.000.-
Bæjarráð samþykkir með atkvæðum Theódóru Þorsteinsdóttur og Birkis Jóns Jónssonar að veita Skógarmönnum KFUM styrk til að ljúka byggingu Birkiskála II í Vatnaskógi að upphæð kr. 200.000.- Hjördís Ýr Johnson, Karen Halldórsdóttir og Kristín Sævarsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
02
Bæjarráð - 2792. fundur
Frá KFUM, dags. 30. september, lögð fram umsókn um styrk til að ljúka byggingu skála í Vatnaskógi æskulýðsmiðstöð fyrir börn og ungmenni.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.