Ársreikningar íþróttafélaga 2014
Málsnúmer: 1510417
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 56. fundur
Fjárhagsstaða íþróttafélaganna í Kópavogi á rekstrarárinu 2014 tekin á dagskrá að nýju, en á 51. fundi ráðsins var starfsmönnum íþróttadeildar falið að hafa samband við þau félög sem hækkun skulda milli ára hafði átt sér stað og óska eftir skýringum. $line$Lögð fram minnisblöð frá fundum starfsmanna með fulltrúum Breiðabliks og HK sem og skýringar félaganna á hækkun skulda einstakra deilda.
Íþróttaráð telur framlagðar skýringar fullnægjandi en leggur áherslu á mikilvægi þess að eftirlit og aðhald aðalstjórna íþróttafélaganna gagnvart einstaka deildum félaganna sé virkt allt árið um kring.
02
Íþróttaráð - 51. fundur
Lagt fram afkomu- og skuldastöðuyfirlit fyrir íþróttafélögin í Kópavogi , unnið af starfsmönnum íþróttadeildar uppúr ársreikningum félaganna fyrir árið 2014.
Almennar umræður um fjárhagsstöðu íþróttafélaganna í Kópavogi. Starfsmönnum íþróttadeildar falið að hafa samband við þau félög þar sem hækkun skulda á sér stað og óska eftir skýringum.