Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Æfingagjöld íþróttafélaga í Kópavogi 2015-2016

Málsnúmer: 1510418

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 56. fundur

Teknar til umræðu breytingar á æfingagjöldum íþróttafélaganna milli áranna 2015 og 2016, en gögn voru lögð fram á 53.fundi ráðsins þann 3. des. sl.$line$Starfsmenn greindu frá því að innsend gögn frá íþróttafélögunum væru mjög mismunandi og ósamræmd.

Íþróttaráð felur starfsmönnum íþróttadeildar að hanna staðlað upplýsingaeyðublað til útfyllingar svo unnt verði að leggja mat á einstakar breytur í gjaldstofni æfingagjalda íþróttafélaganna.

02

Íþróttaráð - 53. fundur

Lögð fram tafla um breytingar á æfingagjöldum íþróttafélaga milli ára, samantekin af starfsmönnum íþrótttadeildar.

Lagt fram, umræðu frestað.

03

Íþróttaráð - 52. fundur

Lögð fram svör þeirra íþróttafélaga/-deilda sem brugðist hafa við fyrirspurn íþróttafulltrúa um æfingagjöld og hvaða þættir liggi að baki verðmyndun þeirra hjá einstökum flokkum/hópum, s.s. kostnað vegna þjálfara, búninga, áhalda og fl.

Almennar umræður, afgreiðslu frestað. Íþróttaráð telur óásættanlegt að sumar deildir/íþróttafélög hafi ekki enn skilað umbeðnum upplýsingum til íþróttadeildar þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar að lútandi.

04

Íþróttaráð - 51. fundur

Lögð fram drög að vinnureglum varðandi ferli við eftirlit með hækkun/lækkun æfingagjalda hjá íþróttafélögum í Kópavogi á hverju ári.

$line$Íþróttaráð leggur áherslu á að gott eftirlit verði með hækkun æfingagjalda/ námskeiðsgjalda félaga og fyrirtækja í bænum og samþykkir framlagðar vinnureglur. Með slíku eftirliti verði betur tryggt að hækkun Frístundastyrkja skili sér til foreldra og forráðamanna. Íþróttaráð felur starfsmönnum að óska eftir upplýsingum um æfingagjöld allra íþróttafélaga sem eru aðilar að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar.$line$