Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Afrekssjóður Íþróttaráðs - Er þörf á endurskoðun?

Málsnúmer: 1510420

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 51. fundur

Lagður fram tölvupóstur frá íbúa í Kópavogi dags. 22. sept. sl., þar sem viðkomandi lýsir sig ósammála þeim markmiðum Afrekssjóðs að útiloka afreksfólk með lögheimili í Kópavogi frá því að fá styrk úr sjóðnum ef það telur að íþróttalegum framgangi sínum sé betur borgið í íþróttafélagi í öðru sveitarfélagi.$line$

Íþróttaráð samþykkir að fella úr c lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar fyrir afrekssjóð ÍTK eftirfarandi texta "og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í Kópavogi." Þannig breyttur hljóðar c liður 1. mgr. 2. gr. "Að veita afreksíþróttafólki styrk sem á lögheimili í Kópavogi."