Til baka í fundargerðir
Hamraendi 25. Beiðni um framsal. Minnisblað lögfræðideildar.
Málsnúmer: 1510506
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2801. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 15. desember, lagt fram minnisblað vegna beiðni um endurupptöku máls er varðar framsal lóðarréttinda Hamraenda 25. Lagt er til að bæjarráð taki málið upp að nýju.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að málið verði tekið upp að nýju og vísar málinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.
02
Bæjarráð - 2793. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 20. október, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Þórhalls Hauks Reynissonar og Kristínar Jónasdóttur um heimild til að framselja lóðina.
Bæjarráð hafnar beiðni um framsal lóðarinnar Hamraenda 25 með fimm atkvæðum. Ber að endurúthluta lóðinni ef lóðarhafar hafa hug á að skila lóð inn.