Álalind 2. Byggingaráform og breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1510547
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1128. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 1. desember, lögð fram að nýju tillaga ASK arkitekta f.h. lóðarhafa að byggingaráformum fyrir Álalind 1-3. Uppdrættir í mkv. 1:200, 1:400 og 1:500 ásamt skýringarmyndum mótt. 26.11.2015. Á fundi skipulagsnefndar 9.11.2015 var málinu frestað. Lóðarhafi óskaði eftir breytingu á samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgar úr 27 í 36 og bílastæðum fjölgar úr 40 í 54 í samræmi við kröfur um fjölda bílastæða pr. íbúð. Bílakjallari stækkar. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í skipulagsskilmálum Glaðheimasvæðis, austurhluta og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2799. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 1. desember, lögð fram að nýju tillaga KRADS arkitekta f.h. lóðarhafa að byggingaráformum fyrir Álalind 2. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum dags. í nóvember 2015. Á fundi skipulagsnefndar 9.11.2015 var málinu frestað. Lóðarhafi óskaði eftir breytingu á samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 23 í 25, heildarbyggingarmagn helst óbreytt. Aðkomukóti jarðhæðar hækkar úr 40,3, í 41,3. Innkeyrsla inn í bílgeymslu færist frá suðurenda lóðar að innkeyrslu inn á lóð í norðri sbr. erindi mótt. 27.11.2015. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í skipulagsskilmálum Glaðheimasvæðis, austurhluta og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1269. fundur
Lögð fram að nýju tillaga KRADS arkitekta f.h. lóðarhafa að byggingaráformum fyrir Álalind 2. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum dags. í nóvember 2015. Á fundi skipulagsnefndar 9.11.2015 var málinu frestað.$line$$line$Lóðarhafi óskar eftir breytingu á samþykktu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 23 í 25, heildarbyggingarmagn helst óbreytt. Aðkomukóti jarðhæðar hækkar úr 40,3, í 41,3. Innkeyrsla inn í bílgeymslu færist frá suðurenda lóðar að innkeyrslu inn á lóð í norðri sbr. erindi mótt. 27.11.2015.
Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í skipulagsskilmálum Glaðheimasvæðis, austurhluta og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1268. fundur
Lögð fram tillaga KRADS arkitekta f.h. lóðarhafa að byggingaráformum fyrir Álalind 2. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum dags. í nóvember 2015.
Frestað.