Staða byggingarframkvæmda á lóðum, fyrirspurn.
Málsnúmer: 1510700
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2799. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 27. nóvember, lagt fram svar við fyrirspurn á fundi bæjarráðs 29.10.2015 um stöðu byggingarframkvæmda á lóðum og lagt til að tíu lóðarhöfum sem ekki hafa sótt um byggingarleyfi verði send bréf þar sem áréttað sé að tímafrestir séu útrunnir og skorað er á viðkomandi að senda inn framkvæmdaáætlun um uppbyggingu á lóðinni.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að þeim lóðarhöfum sem ekki hafa sótt um byggingarleyfi verði send bréf þar sem áréttað sé að tímafrestir séu útrunnir.
02
Bæjarráð - 2794. fundur
Guðmundur Geirdal lagði fram eftirfarandi bókun á fundi skipulagsnefndar:$line$"Skipulagsnefnd skorar á bæjarráð að nýta sér þau úrræði sem það hefur til að hvetja lóðarhafa til að hefja framkvæmdir á lóðum sem þeim hefur verið úthlutað eða að öðrum kosti skila þeim inn."
Bæjarráð óskar eftir yfirliti yfir stöðu framkvæmda á lóðum.
03
Skipulagsnefnd - 1267. fundur
Skipulagsnefnd skorar á bæjarráð að nýta sér þau úrræði sem það hefur til að hvetja lóðarhafa til að hefja framkvæmdir á lóðum sem þeim hefur verið úthlutað eða að öðrum kosti skila þeim inn.$line$Guðmundur Geirdal.$line$$line$Ása Richardsdóttir, Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Anna María Kristjánsdóttir og Kristinn Dagur Gissurarson taka undir bókun Guðmundar Geirdal.