Glaðheimar - austurhluti. Hönnun bæjarlands.
Málsnúmer: 1511136
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur
Lögð fram tillaga Landark ehf., dags. 14.12.2015, að nánari útfærslu deiliskipulags bæjarrýmis í Glaðheimum - austurhluta.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti útfærslur á bæjarrýmis í Glaðheimum - austurhluta.
02
Bæjarstjórn - 1132. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 16. febrúar, lögð fram tillaga Landark ehf., dags. 14.12.2015, að nánari útfærslu deiliskipulags bæjarrýmis í Glaðheimum - austurhluta. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða útfærslu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2809. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 16. febrúar, lögð fram tillaga Landark ehf., dags. 14.12.2015, að nánari útfærslu deiliskipulags bæjarrýmis í Glaðheimum - austurhluta. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða útfærslu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
04
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Lögð fram tillaga Landark ehf., dags. 14.12.2015, að nánari útfærslu deiliskipulags bæjarrýmis í Glaðheimum - austurhluta.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða útfærslu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
05
Skipulagsnefnd - 1270. fundur
Fyrstu drög að hönnun bæjarlandsins í Glaðheimum - austurhluta kynnt.
Kynnt.
06
Skipulagsnefnd - 1268. fundur
Frá Sverri Óskarssyni:$line$Í fylgiriti með samþykktu deiliskipulagi fyrir Glaðheimasvæði - Austurhluta, Skýringarhefti B, eru gerðar kröfur til byggingaraðila um vandaða hönnun og góðan frágang á úthlutuðum lóðum á deiliskipulagssvæðinu. Í ljósi þess telur skipulagsnefnd rétt að bæjaryfirvöld sýni metnað þegar kemur að hönnun bæjarlandsins á svæðinu. Skipulagsnefnd óskar eftir nánari útfærslu á hönnun bæjarlandsins þar sem lögð verði áhersla á vandaða hönnun og góðan frágang á Glaðheimasvæði - Austurhluta.$line$Guðmundur Geirdal, Sigríður Kristjánsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson og Margrét Júlía Rafnsdóttir taka undir bókun Sverris Óskarssonar.