Málefni Tónlistarsafns Íslands. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.
Málsnúmer: 1511271
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 52. fundur
Svar menntamálaráðuneytis lagt fram en erindinu var vísað til ráðsins af bæjarráði.
02
Bæjarráð - 2800. fundur
Frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 30. nóvember, lagt fram svar við fyrirspurn úr bæjarráði um sýn ráðuneytisins á framtíð Tónlistarsafns Íslands í ljósi þess að dregið verður úr framlagi til reksturs safnins skv. fjárhagsáætlun næsta árs.
Bæjarráð vísar málinu til lista- og menningarráðs.
03
Bæjarráð - 2796. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarráð kallar eftir sýn mennta- og menningarmálaráðuneytis á framtíð Tónlistarsafns Íslands og vekur athygli á að í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að dregið verði úr framlagi bæjarins til rekstrar safnsins.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.