Fyrirspurn um lýsingu á Sparkvöllum
Málsnúmer: 1511331
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 52. fundur
Lagður fram tölvupóstur dags. 15. okt. sl., frá íbúa í Vatnsendahverfi, sem óskar eftir því að ljósin á sparkvelli við Vatnsendaskóla fái að loga lengur en til tíu á kvöldin eins og tíðkast á nokkrum öðrum sparkvöllum í bænum og að ljósin séu í lagi. Jafnframt lagðar fram reglur um sparkvelli í Kópavogi frá júlí 2012.
Íþróttaráð biðst velvirðingar á því hve dregist hefur að svara fyrirspurn þinni, en upplýst var að þegar er hafin vinna við að koma lýsingu á völlunum í lag.$line$Íþróttarráð vísar í framlagðar reglur sem settar voru upp við alla sparkvelli bæjarins sumarið 2012. Þær kveða á um opnunartíma vallanna, ( til 22:00 á kvöldin) og afnotarétt hinna ýmsu aldurshópa. $line$Starfsmönnum falið að taka saman yfirlit um ástand og stjórnun lýsingar sparkvallanna sl. ár og leggja fram á næsta fundi ráðsins.