Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Álftröð 1. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1511761

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1135. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, dags. 25.11.2015, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á Álftröð 1. Tillagan var grenndarkynnt og athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016. Skipulagsnefnd hafnaði stækkun bílskúrs/bílskúra og fjölgun bílastæða á lóð. Skipulagsnefnd samþykkti hins vegar stiga og anddyri á austurhlið og svalir á suðurhlið með tilvísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2015 og með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar stækkun bílskúrs/bílskúra og fjölgun bílastæða á lóð, og samþykkir stiga og anddyri á austurhlið og svalir á suðurhlið.

02

Bæjarráð - 2815. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, dags. 25.11.2015, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á Álftröð 1. Tillagan var grenndarkynnt og athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016. Skipulagsnefnd hafnaði stækkun bílskúrs/bílskúra og fjölgun bílastæða á lóð. Skipulagsnefnd samþykkti hins vegar stiga og anddyri á austurhlið og svalir á suðurhlið með tilvísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2015 og með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

Lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, dags. 25.11.2015, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á Álftröð 1. Tillagan var grenndarkynnt og athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016.

Skipulagsnefnd hafnaði stækkun bílskúrs/bílskúra og fjölgun bílastæða á lóð. Skipulagsnefnd samþykkti hins vegar stiga og anddyri á austurhlið og svalir á suðurhlið með tilvísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2015 og með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1272. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, dags. 25.11.2015 f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum við Álftröð 1. Í breytingunni felst að anddyri og utanáliggjandi stigi eru byggð á austurhlið íbúðarhússins og svölum, 4 m x 1,7 m, er bætt við á suðurhlið 2. hæðar. Bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar stækkar um 47,5 m2, byggingarreitur bílskúrs stækkar um 4 m til suðurs og 2 m til austurs. Bygging verður 3 m frá lóðmörkum til austurs, við Skólatröð 1. Heildaraukning á byggingarmagni verður 55,3 m2 og nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,34. Fjögur ný bílastæði bætast við á vesturhluta lóðar sbr. uppdráttum dags. 25.11.2015. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álftraðar 2, 3, 4, 5 og 7. Kynningu lauk 1.2.2016. Athugsemdir bárust frá Guðrúnu Elvu Hjörleifsdóttur, Álftröð 3, dags. 28.1.2016; frá Þórhöllu Kristjánsdóttur, Skólatröð 2, dags. 20.1.2016.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

05

Skipulagsnefnd - 1269. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, dags. 25.11.2015 f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum við Álftröð 1. Í breytingunni felst að anddyri og utanáliggjandi stigi eru byggð á austurhlið íbúðarhússins og svölum, 4 m x 1,7 m, er bætt við á suðurhlið 2. hæðar. Bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar stækkar um 47,5 m2, byggingarreitur bílskúrs stækkar um 4 m til suðurs og 2 m til austurs. Bygging verður 3 m frá lóðmörkum til austurs, við Skólatröð 1. Heildaraukning á byggingarmagni verður 55,3 m2 og nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,34. Fjögur ný bílastæði bætast við á vesturhluta lóðar sbr. uppdráttum dags. 25.11.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álftraðar 3, 5 og 7: Skólatöð 2 og 4.