Beiðni um umsögn. Leyfi fyrir flugeldasýningu.
Málsnúmer: 1512756
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2802. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 23. desember 2015, lagt fram bréf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn E-þjónustunnar ehf., kt. 440602-2310, um leyfi fyrir flugeldasýningu við Skógarlind þann 31. desember 2015 frá kl. 21:00-21:40. Á sama tíma fer fram flugeldasýning Hjálparsveitar Skáta í Kópavogsdal og telur Kópavogsbær óheppilegt að tvær flugeldasýningar fari fram á sama tíma svo nálægt hvor annarri. Vegna reynslu síðustu ára eru einnig gerðar tilteknar ráðstafanir varðandi umferðarstjórnun við flugeldasýningu í Kópavogsdal sem ekki gefst tími til að fara í vegna þessarar sýningar, sökum þess hve seint umsagnarbeiðni barst.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Birkis Jóns Jónssonar að gera ekki athugasemdir við umsóknina.$line$$line$Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar:$line$"Ég tek undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögninni."