Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gjaldtaka í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum.

Málsnúmer: 1512817

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram uppfærð gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn með nýju ákvæði um gjaldtöku vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum í samræmi við reglugerð nr. 1201/2014. Bæjarráð vísaði málinu til hafnarstjórnar til umsagnar á fundi þann 12. febrúar sl. Hafnarstjórn mælti með því við bæjarráð að verðskráin yrði samþykkt. Bæjarráð samþykkti uppfærða gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn fyrir sitt leyti.

Bæjarstjórn samþykkir uppfærða gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2817. fundur

Á fundi bæjarráðs þann 12. febrúar sl. var lögð fram uppfærð gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn með nýju ákvæði um gjaldtöku vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipun í samræmi við reglugerð nr. 1201/2014. Bæjarráð vísaði málinu til hafnarstjórnar til umsagnar. Hafnarstjórn mælti með því við bæjarráð að verðskráin yrði samþykkt.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum uppfærða gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn 2015.

03

Hafnarstjórn - 102. fundur

Frá bæjarráði, erindi bæjarlögmanns, dags. 12. febrúar, lagt fram bréf ásamt uppfærðri gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn með nýju ákvæði um gjaldtöku vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum í samræmi við reglugerð nr. 1201/2014.$line$ $line$Bæjarráð vísar málinu til hafnarstjórnar til umsagnar.$line$ $line$

Hafnarstjórn mælir með því við bæjarráð að verðskráin verði samþykkt.

04

Bæjarráð - 2809. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 12. febrúar, lagt fram bréf ásamt uppfærðri gjaldskrá fyrir Kópavogshöfn með nýju ákvæði um gjaldtöku vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum í samræmi við reglugerð nr. 1201/2014.

Bæjarráð vísar málinu til hafnarstjórnar til umsagnar.

05

Bæjarráð - 2803. fundur

Frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, dags. 22. desember, lagt fram erindi þar sem þeim tilmælum er beint til Kópavogshafna að setja ákvæði um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum inn í gjaldskrá hafnarinnar í samræmi við reglugerð nr. 1201/2014 hið allra fyrsta hafi það ekki þegar verið gert.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.