Bæjarráð, dags. 14. janúar 2015.
Málsnúmer: 1601007F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1130. fundur
2804. fundur bæjarráðs í 11. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Íbúasamtök Engihjalla hafa skilað inn rúmlega 200 undirskriftum til að skora á bæjaryfirvöld að hefja framkvæmdir við endurhönnun og lagfæringar á götu og gangstéttum við Engihjalla sem eru orðnar verulega illa farnar. Mikilvægt er að hlusta á sjónarmið íbúasamtakanna sem hafa staðið sig ákaflega vel á undanförnum árum meðal annars í fegrun umhverfis og lóða og koma til móts við óskir þeirra. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Guðrún Jónína Guðjónsdóttir"$line$$line$Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Kópavogsbær hefur þegar átt í góðu samstarfi við íbúa Engihjalla um fegrun hverfisins á undanförnu ári. Frumkvæði íbúasamtaka sem þessum ber að fagna og á þeim grunni var farið í framkvæmdir árið 2015 við fegrun hverfisins og verður því haldið áfram 2016. $line$Hvað varðar endurhönnun götumyndar Engihjalla, þá verður unnið áfram eftir fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar sem allir bæjarfulltrúar samþykktu. $line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"
02
Skipulagsnefnd - 1271. fundur
15082892 - Skógarlind 2. Sjálfsafgreiðslustöð / fjölorkustöð. $line$Frá Festi hf., dags. 15. desember, lagt fram bréf vegna synjunar skipulagsnefndar á erindi félagsins, sem lóðarahafa við Skógarlind 2, um heimild til að koma fyrir sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti, rafmagnshleðslu eða aðra umhverfisvæna orkugjafa. Afgreiðslu málsins var frestað á fundi bæjarstjórnar þann 15.12.15. Farið er þess á leit við bæjarstjórn að staðfesta ekki afgreiðslu skipulagsnefndar heldur vísa málinu aftur til meðferðar hjá skipulagsnefnd þar sem synjun hafi ekki byggst á málefnalegum sjónarmiðum að mati félagsins. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.