Velferð barna í Kópavogi. Skýrsla Unicef um réttindi barna sem líða efnislegan skort.
Málsnúmer: 16011276
Ferill máls
01
Skólanefnd - 104. fundur
Vegna bókunar á fundi bæjarstjórnar 26. apríl sl., en þar lagði Ása Richardsdóttir fram eftirfarandi bókun:"Skýrsla UNICEF varpar ljósi á fátækt barna á Íslandi, sem þrátt fyrir bættan hag þjóðarbús, hefur aukist frá árinu 2009. Fjöldi barna sem býr við verulegan skort hefur þrefaldast milli áranna 2009 og 2014. Þetta varðar okkur öll og ábyrgð ríkis og sveitarfélaga er rík. Ætla má að hátt í 200 börn í Kópavogi líði verulegan skort. Ég hvet félagsmálaráð og skólanefnd til að vinna sameiginlegar tillögur að sértækum og almennum aðgerðum, í þágu þessara barna."$line$$line$Eftirfarandi var síðan bókað um málið í Félagsmálaráði þann 2. mai sl.:$line$"Sviðsstjóra var falið að koma á samtali á milli sviðsins, grunnskóla, leikskóla og íþróttafélaga í þeim tilgangi að greina vandann og kortleggja aðstæður þeirra barna í bænum sem mögulega búa við verulegan efnislegan skort."
Skólanefnd fagnar því að samvinna velferðasviðs og menntasviðs sé hafin.
02
Félagsmálaráð - 1410. fundur
Vegna bókunar á fundi bæjarstjórnar 26. apríl sl., en þar lagði Ása Richardsdóttir fram eftirfarandi bókun:$line$"Skýrsla UNICEF varpar ljósi á fátækt barna á Íslandi, sem þrátt fyrir bættan hag þjóðarbús, hefur aukist frá árinu 2009. Fjöldi barna sem býr við verulegan skort hefur þrefaldast milli áranna 2009 og 2014. Þetta varðar okkur öll og ábyrgð ríkis og sveitarfélaga er rík. Ætla má að hátt í 200 börn í Kópavogi líði verulegan skort. Ég hvet félagsmálaráð og skólanefnd til að vinna sameiginlegar tillögur að sértækum og almennum aðgerðum, í þágu þessara barna.$line$Ása Richardsdóttir"
Sviðsstjóra var falið að koma á samtali á milli sviðsins, grunnskóla, leikskóla og íþróttafélaga í þeim tilgangi að greina vandann og kortleggja aðstæður þeirra barna í bænum sem mögulega búa við verulegan efnislegan skort.$line$$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarstjórn - 1136. fundur
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 29. mars, lögð fram skýrsla sem velferðarsviði var falið að taka saman um velferð barna í Kópavogi í tilefni af skýrslu Unicef um börn sem líða efnislegan skort á Íslandi. Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Lagt fram.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Skýrsla UNICEF varpar ljósi á fátækt barna á Íslandi, sem þrátt fyrir bættan hag þjóðarbús, hefur aukist frá árinu 2009. Fjöldi barna sem býr við verulegan skort hefur þrefaldast milli áranna 2009 og 2014. Þetta varðar okkur öll og ábyrgð ríkis og sveitarfélaga er rík. Ætla má að hátt í 200 börn í Kópavogi líði verulegan skort. Ég hvet félagsmálaráð og skólanefnd til að vinna sameiginlegar tillögur að sértækum og almennum aðgerðum, í þágu þessara barna.$line$Ása Richardsdóttir"
04
Bæjarráð - 2817. fundur
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 29. mars, lögð fram skýrsla sem velferðarsviði var falið að taka saman um velferð barna í Kópavogi í tilefni af skýrslu Unicef um börn sem líða efnislegan skort á Íslandi.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.$line$$line$Sviðsstjóri velferðarsviðs og deildarstjóri ráðgjafa- og íbúðadeildar sátu fundinn undir þessum lið.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður þakkar fyrir skýrslu velferðarsviðs og úttekt vegna skýrslu Unicef um velferð barna. Undirritaður treystir því að við gerð fjárhagsáætlunar verði sérstaklega tekið á þeim málum sem þar eru nefnd og að góð samstaða náist um þau mál.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson tóku undir bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar.
05
Félagsmálaráð - 1406. fundur
Lagt fram til upplýsingar.
06
Skólanefnd - 98. fundur
Skýrsla lög fram til upplýsingar og umræðu.
Umræða fór fram og skólanefnd óskar eftir því að fylgjast með könnun velferðasviðs.
07
Bæjarstjórn - 1130. fundur
Lögð fram tillaga forsætisnefndar til bæjarstjórnar vegna velferðar barna í Kópavogi í tilefni af skýrslu Unicef um börn sem líða efnislegan skort á Íslandi. Lagt er til að Velferðarsviði Kópavogsbæjar verði falið að skoða gögn þau sem UNICEF hefur lagt til grundvallar rannsókn sinni og skili skýrslu til bæjarstjórnar Kópavogs um hversu mörg börn í Kópavogi líði efnislegan skort og verulegan skort og sundurliði hann á sama hátt og gert er í skýrslu UNICEF.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.