Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um umsögn vegna breytingar á byggingarreglugerð.

Málsnúmer: 16011363

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 16. febrúar, lögð fram umsögn um drög að breytingum á byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela lögfræðideild að senda umhverfis- og auðlindaráðuneyti umsögn Kópavogsbæjar.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður getur ekki tekið undir ákvæði sem gert er ráð fyrir að breyta í greinum 6.7.4 og 6.7.6 í byggingarreglugerð. Ég tel ekki ástæðu til að draga úr kröfum hvað varðar birtu og lýsingu í íbúðarhúsnæði.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Karen Halldórsdóttir óskaði fært til bókar að hún taki ekki undir þann vilja að mögulegt verði að byggja þriggja hæða hús án lyftu. Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir sjónarmið Karenar Halldórsdóttur.

02

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 8. febrúar, lagt fram minnisblað um breytingar á byggingarreglugerð nr. 112/2012 til lækkunar byggingarkostnaðar íbúðarhúsnæðis.

Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður getur ekki tekið undir ákvæði sem gert er ráð fyrir að breyta í greinum 6.7.4 og 6.7.6 í byggingarreglugerð. Ég tel ekki ástæðu til að draga úr kröfum hvað varðar birtu og lýsingu í íbúðarhúsnæði.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"

03

Bæjarráð - 2806. fundur

Frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, dags. 22. janúar, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir umsögn um drög að breytingum á byggingarreglugerð nr. 112/2012. Umsagnir skulu berast eigi síðar en 10. febrúar nk.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.