Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ársreikningur 2015. Seinni umræða.

Málsnúmer: 1601139

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1137. fundur

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum samantekins ársreiknings Kópavogsbæjar 2015, A-hluta fyrirtækja samstæðunnar, sem eru Eignasjóður Kópavogsbæjar, Byggingarsjóður MK og Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, svo og B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar: Fráveitu Kópavogsbæjar, Vatnsveitu Kópavogsbæjar og Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar ásamt ársreikningum B-hluta fyrirtækjanna Tónlistarhúss Kópavogs og Hafnarsjóðs Kópavogs, sem höfðu verið samþykktir í viðkomandi stjórn/nefnd. Einnig var lagður fram samþykktur ársreikningur Vatna ehf., Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. og félagsins Músik og saga ehf. Þá var lögð fram skýrsla löggiltra endurskoðenda bæjarins. Lagði bæjarstjóri til að samantekinn ársreikningur Kópavogsbæjar 2015 ásamt fylgigögnum yrði samþykktur. Bæjarstjóri lagði fram til staðfestingar bæjarstjórnar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, sem þegar hefur verið samþykktur í stjórn sjóðsins.

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar árið 2015 er verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þannig var rekstrarniðurstaða A-hluta neikvæð um 222 m.kr. en gert var ráð fyrir 147 m.kr. afgangi. Þegar B-hluti samstæðunnar er tekinn inn þá er 161 m.kr. afgangur af rekstri bæjarfélagsins. Til samanburðar þá var rekstrarafgangur bæjarfélagsins árið 2014 660 m.kr. og hefur því lækkað um 500 m.kr. á milli ára. Þá er ljóst að lífeyrisskuldbindingar eiga eftir að hækka um hundruðir milljóna ef sömu forsendur verða notaðar og hjá Reykjavíkurborg.$line$Skuldir og skuldbindingar bæjarins hækka í krónum talið milli áranna 2014 og 2015 en lækka örlítið að raungildi þegar tillit er tekið til verðlagsbreytinga. Skuldahlutfallið lækkar úr 175,2% í 161,8% á milli ára og skýrist sú lækkun fyrst og fremst af því að fleiri íbúar eru á bak við skuldir og skuldbindingar bæjarins, en íbúum Kópavogs fjölgaði um 1010 á árinu 2015. Það er hins vegar ljóst að rekstur bæjarins verður mjög þungur ef verðbólgan fer á skrið, en síðustu 2 ár hafa verið mjög hagfelld í þeim efnum. 5% hækkun á verðlagi myndi leiða til allt að 1500 milljóna króna verri rekstrarniðurstöðu. Það er því mikilvægt að bæjaryfirvöld gæti aðhalds í rekstri og í raun dapurlegt að ekki hafi náðst betri árangur til lækkunar skulda en raun ber vitni.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:$line$"A-hluti bæjarsjóðs er rekinn með 221 milljón króna halla. Kópavogsbær er með skuldsettustu sveitarfélögum landsins með skuldahlutfall upp á 161,8% sem hefur lækkað frá fyrra ári vegna aukinna skatttekna Kópavogsbæjar, en skuldir og skuldbindingar Kópavogsbæjar hafa aukist í krónutölu um 170 milljónir króna. Áhyggjuefni er hvernig afborgunum langtímaskulda er stillt upp, en á árinu 2019, þegar nýtt kjörtímabil er hafið, er áætlað að afborgun langtímalána nemi 6,3 milljörðum króna eða 3,6 sinnum hærri afborgun en undanfarin ár. Ljóst er að slíkt mun ekki ganga upp.$line$Kópavogsbær keypti aðeins 5 félagslegar íbúðir að verðmæti 110 milljónir króna á árinu. Ekki nóg með það þá seldi Kópavogsbær eina íbúð fyrir 30 milljónir þannig að raunkostnaður bæjarins var 80 milljónir. Gert var ráð fyrir að setja 200 milljónir til fjölgunar á félagslegu húsnæði. Við það var ekki staðið og er það algerlega úr takti við húsnæðisskýrslu Kópavogsbæjar sem þverpólitísk sátt náðist um. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$Hlé var gert á fundi kl. 16.45. Fundi var fram haldið kl. 17:10.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa meirihlutans:$line$"Ársreikningur Kópavogsbæjar sýnir sterka stöðu bæjarins þrátt fyrir að á árinu hafi launakostnaður og lífeyrisskuldbindingar hækkað um einn milljarð króna frá fjárhagsáætlun. Niðurstaða ársreiknings er jákvæð um 161 milljón króna. Þá má benda á að skuldir bæjarins reiknaðar á hvern íbúa eru 1,23 milljónir, sem er lægsta skuld á íbúa ef horft er til fimm stærstu sveitafélaga á landinu. $line$Á árinu 2015 voru keyptar og byggðar 11 félagslegar íbúðir og fljótlega upp úr síðastliðnum áramótum bættust við 9 íbúðir í þessu sama kerfi. Aðgerðir sem þessar samræmast að fullu þeirri stefnu sem mörkuð var í húsnæðisskýrslunni. $line$Meirihlutinn mun áfram gæta aðhalds í rekstri ásamt metnaðarfullri uppbyggingu á innviðum bæjarins og leggja sig fram við að veita fyrsta flokks þjónustu fyrir íbúa Kópavogs.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17.15. Fundi var fram haldið kl. 17.19.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:$line$"Ljóst er að samkvæmt ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 voru settar 80 milljónir króna nettó, í kaup á félagslegum íbúðum en í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að verja 200 milljónum króna.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17.20. Fundi var fram haldið kl. 17.23.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa meirihlutans:$line$"Frá því að húsnæðisskýrslan kom út hafa verið byggðar og keyptar 14 íbúðir. 1 í Sunnuhlíð, 4 í Gullsmára, 4 í Austurkór, 1 á Huldubraut og 4 af Íbúðalánasjóði.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson"$line$$line$Forseti bar undir fundinn til staðfestingar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn staðfestir ársreikninginn með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og saga ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn ársreikning Kópavogsbæjar, þ.e. ársreikning Kópavogsbæjar, A- og B-hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B-hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.

02

Hafnarstjórn - 103. fundur

Ingólfur Arnarsson, fjármála- og hagsýslustjóri, fór yfir ársreikninginn og gerði grein fyrir hugsanlegri endurskoðun á uppgjörsaðferð sem miðar að því að styrkja rekstrartekjur hennar.

Stjórn Kópavogshafnar samþykkir reikninginn fyrir sitt leyti.

03

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2015. Bæjarráð samþykkti ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins skv. 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 er undirritaður og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Kópavogsbæjar, A og B hluta. Greindi hann frá rekstrarniðurstöðum og helstu frávikum. Þannig skýrði hann út sjóðsstreymi og niðurstöður efnahagsreiknings. Einnig var lagður fram ársreikningur LSK til kynningar. Þá lagði bæjarstjóri til að ársreikningi Kópavogsbæjar yrði vísað til seinni umræðu.$line$$line$Bæjarstjórn vísar afgreiðslu ársreiknings Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins til seinni umræðu með 11 atkvæðum.

04

Bæjarráð - 2818. fundur

Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2015.

Bæjarráð samþykkir framlagða ársreikninga með fimm atkvæðum og vísar afgreiðslu ársreikninga til bæjarstjórnar.