Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samþykkt um bílastæði og gjaldtaka.

Málsnúmer: 16011519

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 18. febrúar, lögð fram umsögn í tilefni af erindi Árna Davíðssonar að því er varðar gjaldtöku á bílastæðum og rekstur bílastæðasjóðs í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarlögmanni að svara erindinu á grundvelli framlagðrar umsagnar.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður óskar eftir því að bæjarlögmaður kanni hvort hægt sé að taka upp samstarf við önnur sveitarfélög vegna umsýslu við gjaldtöku af bílastæðum."

02

Bæjarráð - 2807. fundur

Frá Árna Davíðssyni, dags. 26. janúar, þar sem farið er fram á það að Kópavogsbær setji reglur um notkun stöðureita og gjald fyrir hana samkvæmt heimild í 83 gr. umferðarlaga.

Bæjarráðs vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.