Losun gróðurhúsalofttegunda. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni.
Málsnúmer: 1601179
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2819. fundur
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 20. apríl, lagt fram erindi um losun gróðurhúsalofttegunda og minnkun kolefnisspors í Kópavogi.
Lagt fram.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur
Lagt fram erindi frá Ólafi Þór Gunnarssyni varðandi losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisfótspor Kópavogsbæjar.
Í samræmi við innsent erindi hefur umhverfis- og samgöngunefnd samþykkt að lagt verði til að Kópavogsbær hefji vinnu við verkefnið Aðgerðaráætlun varðandi loftlagsmál og losun gróðurhúsaloftlagstegunda með það að leiðarljósi að Kópavogsbær taki þátt í verkefninu Compact of Mayors og haldi losunarbókhald í samræmi við Global Protocol for Community-Scale Greenhouse Gas Emission Inventories (GPC) með það markmið að skila Carbon Disclosure Project (CDP) skýrslu.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar og til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur
Lagt fram minnisblað frá umhverfissviði dags. 7.3.2016 varðandi þátttöku í Compact of Mayors og losunarbókhald.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkaði ReSource International ehf. fyrir kynninguna.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfisviðs og samanburðar við þá umhverfisvísa sem mældir eru í dag.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur
Frá 2804 fundi bæjarráðs 14.1.2016.$line$Tekin fyrir að nýju tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, sem var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.$line$Bæjarráð Kópavogs samþykkir með fimm atkvæðum að beina því til umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar að meta hvort og með hvaða hætti Kópavogsbær geti sett sér sjálfstæð markmið, m.t.t. losunar gróðurhúsalofttegunda og minnkunar svokallaðs kolefnisspors, í samræmi við þau markmið sem sett voru á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember síðastliðnum.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að hefja vinnu við samantekt á hvernig Kópavogsbær stendur í samræmi við þau markmið sem sett voru á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember síðastliðinn og skila til nefndarinnar. Þegar samantektin liggur fyrir verða næstu skref varðandi kolefnisfótspor Kópavogsbæjar og markmið Parísarráðstefnunnar ákveðin.
05
Bæjarráð - 2804. fundur
Tekin fyrir að nýju tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, sem var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð Kópavogs samþykkir með fimm atkvæðum að beina því til umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar að meta hvort og með hvaða hætti Kópavogsbær geti sett sér sjálfstæð markmið, m.t.t. losunar gróðurhúsalofttegunda og minnkunar svokallaðs kolefnisspors, í samræmi við þau markmið sem sett voru á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember síðastliðnum.
06
Bæjarráð - 2803. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni um sjálfstæð markmið Kópavogsbæjar vegna losunar gróðurhúsalofttegunda.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$$line$"Bæjarráð Kópavogs samþykkir að beina því til umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar að meta hvort og með hvaða hætti Kópavogsbær geti sett sér sjálfstæð markmið, m.t.t. losunar gróðurhúsalofttegunda og minnkunar svokallaðs kolefnisspors, í samræmi við þau markmið sem sett voru á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember síðastliðnum.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.