Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga SSH um sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðra.

Málsnúmer: 1601648

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1132. fundur

Frá SSH, dags. 12. janúar, lögð fram tillaga stjórnar SSH vegna samkomulags sveitarfélaganna um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, ásamt minnisblaði framkvæmdastjóra SSH, lokaskýrslu framkvæmdaráðs ferðaþjónustu fatlaðs fólks og umsögn samráðshóps félagsmálastjóra og fundargerð. Bæjarráð samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði málinu til bæjarstjórnar, en áréttaði sérákvæði 6. gr. samkomulagsins frá maí 2014, þar sem fram kemur að Kópavogsbær tekur ekki þátt í kostnaði verkefnisins hjá Strætó bs.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.$line$$line$Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Þakkað er fyrir þá vinnu og athuganir sem fram hafa farið á ferðaþjónustunni. Undirritaður telur að erfitt sé fyrir Kópavogsbæ að eiga samstarf við önnur sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins um framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðra miðað við framlagða tillögu SSH. Það liggur ekki skýrt fyrir hvernig brugðist verður við grundvallar athugasemdum framkvæmdaráðsins. Of margir aðilar eiga að koma að verkefninu, til dæmis verður samráðshópur félagsmálstjóra í gangi, stjórn SSH á að koma að verkefninu, stofna á stjórnunarteymi, Strætó og stjórn þess á að hafa hlutverk, stofna á samráðshóp skólaþjónustu og fleira. Auk þess heyrast hugmyndir hjá sveitarfélögum þess efnis að aðrir aðilar komi að keyrslu á fötluðum í ákveðnum tilvikum, þar sem slíkt er álitið hagkvæmara en núverandi ferðaþjónusta. Tillagan er flókin í framkvæmd, of margir aðilar með óljóst faglegt og fjárhagslegt hlutverk, rekstrarformið ómarkvisst og auk þess vantar bein tengsl við notendur þjónustunnar.$line$Óskað eftir að þessi bókun verði send stjórnar SSH og stjórnar Strætó.$line$Sverrir Óskarsson"

02

Bæjarráð - 2809. fundur

Frá SSH, dags. 12. janúar, lögð fram tillaga stjórnar SSH vegna samkomulags sveitarfélaganna um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, ásamt minnisblaði framkvæmdastjóra SSH, lokaskýrslu framkvæmdaráðs ferðaþjónustu fatlaðs fólks og umsögn samráðshóps félagsmálastjóra og fundargerð.

Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar, en áréttar sérákvæði 6. gr. samkomulagsins frá maí 2014, þar sem fram kemur að Kópavogsbær tekur ekki þátt í kostnaði verkefnisins hjá Strætó bs.