Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skemmuvegur 48, sótt um stækkun á lóð.

Málsnúmer: 1601673

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1277. fundur

Frá bæjarráði:$line$Á fundi bæjarráðs 21. janúar 2016 var lagt fram erindi frá S. Helgasyni móttekið 14. janúar 2016 um stækkun á lóð félagsins að Skemmuvegi 48 til austurs (Skemmuvegur 50) og að félagið fái heimild til að byggja á þeirri lóð.$line$$line$Lögð fram til kynningar tillaga arkitektastofunnar Trípólí að nýbyggingu ásamt lóðastækkun við Skemmuveg 50 dags. 27.4.2016.

Skipulagsnefnd samþykkti framlögð byggingaráform.

02

Skipulagsnefnd - 1272. fundur

Frá bæjarráði:$line$Lögð fram umsókn lóðarhafa Skemmuvegar 48, S. Helgasyni ehf., þar sem óskað er eftir að stækka lóðina til austurs. Óskað er eftir leyfi til að byggja á lóðinni við hliðina, Skemmuvegi 50.

Skipulagsnefnd samþykkti að lóðarhafi vinni tillögu að deiliskipulagsbreytingu í samráði við skipulags- og byggingardeild þar sem m.a. kemur fram umrædd stækkun lóðarinnar til austurs ásamt fyrirhugaðri viðbyggingu og jafnframt verði hugað að tengingum fyrir gangandi og hjólandi.

03

Bæjarráð - 2805. fundur

Frá S. Helgassyni ehf., lögð fram umsókn um stækkun á lóð félagsins að Skemmuvegi 48 til austurs. Félagið óskar eftir að fá leyfi til að byggja á lóðinni við hliðina, að Skemmuvegi 50.

Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til afgreiðslu.